13. september 2019 „Hugmyndin um erfðagjafir til góðra mála er lofsverð og mætti gjarnan vera meira um þær hér á landi,“ sagði Gylfi Magnússon, dósent og formaður stjórnar styrktarsjóða Háskóla Íslands. Gylfi flutti erindi á málþingi sjö góðgerðafélaga í Iðnó í dag um erfðagjafir, á alþjóðlegum degi erfðagjafa. Erfðagjafir felast í að ánafna hluta af eigum sínum eftir sinn dag til málefnis sem viðkomandi er annt um.
Í máli sínu fór Gylfi yfir það hvernig erfðagjafir, sem og aðrir góðir styrkir, hafa nýst háskólanum í gegnum tíðina. Gylfi sagði styrktarsjóði Háskóla Íslands vera 45 talsins í dag og að þeir, sem og styrkirnir, væru skólanum mikilvægir. Skiljanlega væru sjóðirnir misstórir en eignir þeirra nema að sögn Gylfa tæpum sex milljörðum króna og veittu þeir styrki upp á 104 milljónir króna í fyrra.
Stærstur þeirra væri Háskólasjóður Eimskipafélags Íslands með helming heildareign sjóðanna sem hefði veitt styrki upp á 1,2 milljarða króna frá árinu 2006. Gylfi fór yfir hina ýmsu sjóði háskólans, söguna, stóra gefendur og starfsemi.
Sagði Gylfi íslenska skattalöggjöf almennt ekki mjög hagfellda styrktarsjóðum. Erfðagjafir eru þó undanskildar erfðafjárskatti þökk sé nýlegum lagabreytingum.
Á málþinginu tók einnig til máls Bjarnfreður Ólafsson lögmaður og fór yfir atriði tengd erfðaskrám og erfðagjöfum. Lagði hann mikla áherslu á mikilvægi þess að vandað væri til verka við að útbúa erfðaskrár og gjafir af þessu tagi. Tók hann mörg dæmi þess hvernig minnstu smáatriði geta oft orðið til að flækja málin.
„Erfðagjafir eru fallegur máti til þess að breyta heiminum til hins betra fyrir komandi kynslóðir barna og skilja eftir sig arfleið sem endurspeglar gott ævistarf,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Og bætir við að mannúðarfélög fái alltaf fyrirspurnir af og til um erfðagjafir.
„Við viljum því vekja athygli á þessum valkosti.“
Málþingið í dag var hápunktur vitundarátaks sem Almannaheill, Blindrafélagið, Krabbameinsfélagið, Rauði krossinn, SOS Barnaþorp, Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og UNICEF á Íslandi standa að. Yfirskrift átaksins er „Gefðu framtíðinni forskot.
Nánar má lesa um átakið á vefsíðunni www.erfdagjafir.is
Allar upplýsingar um erfðagjafir til UNICEF á Íslandi finnur þú hér.



