21. nóvember 2013

Filippseyingar búsettir á Dalvík leggja neyðarsöfnun UNICEF lið

Um síðustu helgi tóku Filippseyingar búsettir á Dalvík sig saman og stóðu fyrir fjáröflun til styrktar neyðarsöfnun UNICEF á Filippseyjum. Heppnaðist viðburðurinn afar vel og söfnuðust hvorki meira né minna en 438.500 krónur sem renna til neyðarhjálpar UNICEF á Filippseyjum.

Annalou Perez er ein af skipuleggjendum viðburðarins. Hún segðist vera mjög þakklát fyrir að lítið bæjarfélag eins og Dalvíkurbyggð hefði sýnt mátt sinn í verki og tekið fjáröfluninni afar vel. Fjáröflunin fólst í sölu á vorrúllum og alls söfnuðust hvorki meira né minna en 438.500 krónur! Annalou var að vonum afar ánægð með viðtökurnar.

„Fólk streymdi að og sýndi örlæti sitt í verki. Fólk af öllum þjóðernum sem starfar í frystihúsi Samherja rétti okkur hjálparhönd þrátt fyrir þreytuna. Síðast en ekki síst erum við Samherja þakklát fyrir að gefa okkur skjól til að gera þetta að veruleika,“ segir Annalou á Facebook síðu sinni.

Fagrir litir fjölmenningarinnar

Annalou og félagar fengu hjálp frá Tælendingum og Pólverjum við að útbúa vorrúllurnar en Samherji útvegaði hráefnið. Samanlagt urðu rúllurnar yfir þrjú þúsund og seldust þær upp á innan við klukkustund. Þá var enn biðröð fyrir utan Samherja og ákvað fólk þá að gefa pening í söfnunina. Einnig lögðu Tælendingar búsettir á Dalvík sitt af mörkum til söfnunarinnar með því að selja núðlur fyrir 78.000 krónur.

„Ísland er kalt land en Íslendingar eru með hlýtt hjarta, þetta er ís og eldur! Fjölmenningarsamfélagið í Dalvíkurbyggð (fólk frá Tælandi, Póllandi, Perú, Lettlandi og fleira) sýnir alla sína fallegu liti og það er ólýsanlegt,“ segir Annalou og er að vonum afar ánægð með hvernig til tókst.

„Erfitt að hlusta á börnin úti á Filippseyjum gráta“
Sjálf á hún ekki skyldmenni sem lentu í hamförunum á Filippseyjum þegar fellibylurinn Haiyan reið yfir í byrjun mánaðarins. Hún þekkir hins vegar til fólks sem enn leitar að skyldmennum sínum.

Í Fréttablaðinu var tekið viðtal við Annalou. „Það er gott að vita til þess að börnin á Filippseyjum fái þennan pening. Ég á börn sjálf. Ég get gefið þeim að borða þegar þau eru svöng og hlýjað þeim þegar þeim er kalt. Þess vegna er mjög erfitt að hlusta á börnin úti á Filippseyjum gráta,“ sagði hún þar.

UNICEF á Íslandi vill koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg við þetta frábæra framtak. Neyðin á Filippseyjum er enn mikil og því skiptir hvert einasta framlag afar miklu máli.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn