23. júní 2020

Fimm ástæður fyrir því að COVID-19 er verra í Jemen

Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur á vef sínum tekið saman fimm ástæður fyrir því hvers vegna svo er.

Ævar Þór Benediktsson - Ævar vísindamaður - er talsmaður UNICEF-hreyfingarinnar í ár.

Kórónaveiran breiðist hraðar út, víðar og kostar fleiri lífið í Jemen en í mörgum öðrum löndum segja Sameinuðu þjóðirnar. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur á vef sínum tekið saman fimm ástæður fyrir því hvers vegna svo er.

1. Stríðsátök geisa þar enn

Frá árinu 2015 hefur blóðug borgarastyrjöld geisað í landinu með skelfilegum afleiðingum. Milljónir manna eru án heilbrigðisþjónustu, vatns og hreinlætisaðstöðu sem allt eru grundvallarforsendur fyrir því að koma í veg fyrir smit. Stríðandi fylkingar hafa sömuleiðis torveldað hjálparstarf og afhendingu hjálpargagna með tálmum á landi, sjó og lofti.

Engin samstillt áætlun er fyrir hendi til að takast á við kórónaveiruna í landinu þar sem ekkert eiginlegt ríkisvald er til staðar.

2. Þar var fyrir versta mannúðarkrísa í veröldinni

Ástandið í Jemen gerir almenning útsettan fyrir smitsóttum eins og COVID-19. Þremur árum áður en COVID-19 kom til sögunnar höfðu Sameinuðu þjóðirnar lýst því yfir að ekkert land væri meira hjálparþurfi en Jemen. 24 milljónir manna, um 80 prósent íbúa, reiða sig á mannúðaraðstoð til að komast af. Milljónir manna lýða hungursneyð.

Áætlað er að tvær milljónir barna séu alvarlega vannærð í Jemen og þar var fyrir glímt við erfiða sjúkdómafaraldra á borð við beinbrunasótt (e. dengue fever), malaríu og kóleru. Veikt ónæmiskerfi og undirliggjandi sjúkdómar gera fólk útsettara fyrir alvarlegum afleiðingum COVID-19 smits.

3. Heilbrigðiskerfið er hrunið

Heilbrigðiskerfið í Jemen hefur litla sem enga burði til að takast á við faraldur COVID-19 eftir fimm ára stríð. Margar af 3.500 sjúkrastofnunum Jemen hafa verið skemmdar eða gjöreyðilagðar í loftárásum og aðeins helmingur þeirra er starfhæfur.

Þær stofnanir sem eru starfhæfar eru yfirfullar og undirmannaðar og vanbúnar. Í Jemen búa 27,5 milljónir manna en þar eru aðeins nokkur hundruð öndunarvélar sem notaðar eru í tilfellum COVID-19.

4. Raunverulegur fjöldi kórónaveirusmita er óþekktur.

Án þess að vita nákvæmlega hver er smitaður af kórónaveirunni er erfiðara að fyrirbyggja smit og gera áætlanir um fjölda sjúklinga í viðkvæmu heilbrigðiskerfi. Frá því að fyrsta smitið greindist á yfirráðasvæðistjórnarhersins í apríl hefur verið ómögulegt að segja til um raunverulega útbreiðslu. Ríkisstjórnin hefur greint frá 900 smitum á meðan uppreisnarmenn sem ráða yfir höfuðborginni og öðrum þéttbýlissvæðum segjast aðeins hafa greint fjögur tilfelli á þeirra yfirráðasvæði.

Sameinuðu þjóðirnar áætla að fjöldi tilfella sem umtalsvert hærri þar sem skortur sé á kórónaveiruprófum og gagnsæi í upplýsingum frá stríðandi fylkingum.

5. Heilbrigðisstarfsfólk er berskjaldað

Auk almenns lyfjaskorts þá skortir sjúkrastarfsmenn hlífðarbúnað á borð við grímur og sloppa til að verja sig smiti. BBC vísar í óstaðfesta frásögn einkarekna fjölmiðilsins Al-Masdar sem segir tugi sjúkrastarfsmanna hafa látið lífið vegna COVID-19 á yfirráðasvæðum bæði uppreisnarmanna og stjórnarhersins. Einn fremsti smitsjúkdómasérfræðingur Jemen, Yhassin Abdul Wareth, lést af völdum COVID-19 fyrr í þessum mánuði og var andláti hans lýst með þungu höggi fyrir heilbrigðiskerfi þjóðarinnar.

Heimild: BBC: Coronavirus: Five reasons why it is so bad in Yemen.

UNICEF á Íslandi stendur fyrir neyðarsöfnun fyrir börn í Jemen sem búa við vatnsskort, hungur og eru berskjölduð fyrir afleiðingum COVID-19 faraldursins. Sendu sms-ið JEMEN í númerið 1900 til að styrkja UNICEF um 1.900 krónur.
Þú getur líka styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi með frjálsu framlagi hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn