05. júní 2018

Fjölmenni í sýrlensku matarboði til styrktar börnum í Jemen

Fjölmenni var í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 2. júní þegar þeir Talal Abo Khalil, ásamt Kinan Kadouni og fleiri vinum, buðu upp á sýrlenskt góðgæti og tóku í staðinn á móti framlögum í neyðarsöfnun UNICEF fyrir börn í Jemen. Á viðburðinum söfnuðust yfir 300.000 kr. fyrir börn sem eiga um sárt að binda í Jemen. Við viljum þakka öllum þeim sem lögðu leið sína í Ráðhúsið og lögðu söfnunni lið. Einnig eiga þeir Talal, Kinan og vinir hrós skilið fyrir frábært framtak, hlýhug og glæsilega eldamennsku.

Viðburðurinn er hluti af söfnunarátakinu Má ég segja þér soldið? sem UNICEF á Íslandi stendur fyrir og enn er hægt að leggja söfnuninni lið. Hægt er að styðja söfnunina með því að senda SMS-ið JEMEN í númerið 1900 eða leggja inn frjálst framlag á heimasíðu okkar HÉR. Fyrir 1900 krónur er t.d. hægt að veita barni rúmlega tveggja vikna meðferð við vannæringu. Frekari upplýsingar um söfnunina má nálgast hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn