03. apríl 2007

Flóðbylgja á Salómonseyjum - neyðarhjálp hafin

Síðastliðið sunnudagskvöld skall flóðbylgja á Salómonseyjar í Kyrrahafi í kjölfar jarðskjálfta sem mældist 7.6 stig á Richter kvarða. Staðfest er að a.m.k 21 hafi látið lífið og 100 liggja slasaðir (samkvæmt tölum frá 3. apríl). Um 25 þúsund manns misstu heimili sín og sjúkrahús og heilsugæslustöðvar eru mikið skemmdar. Þegar er farið að meta ástandið og funduðu UNICEF og samstarfsaðilar í dag varðandi næstu skref.

Síðastliðið sunnudagskvöld skall flóðbylgja á Salómonseyjar í Kyrrahafi í kjölfar jarðskjálfta sem mældist 7.6 stig á Richter kvarða. Staðfest er að a.m.k 21 hafi látið lífið og 100 liggja slasaðir (samkvæmt tölum frá 3. apríl). Um 25 þúsund manns misstu heimili sín og sjúkrahús og heilsugæslustöðvar eru mikið skemmdar. Þegar er farið að meta ástandið og funduðu UNICEF og samstarfsaðilar í dag varðandi næstu skref. Neyðargögn eru þegar farin að berast til svæðanna sem urðu fyrir flóðbylgjunni.

Heilbrigðisráðuneyti landsins hefur beðið um neyðar-heilsugæslupakka fyrir 4 spítala og fyrir 4 önnur svæði. UNICEF mun bregðast við þessu og senda pakkana í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina. Reynt verður að útvega malaríulyf og koma á bólusetningarátaki gegn mislingum. Þegar hafa borist neyðargögn á sviði vatns og hreinlætis, auk þess sem tjöldum og mat hefur verið dreift. Fulltrúar UNICEF munu eiga fund með menntamálaráðuneytinu á morgun.

Nánar um flóðbylgjuna
Jarðskjálftinn átti sér stað á Bougainville svæðinu sem tilheyrir Papúa Nýju-Gíneu klukkan 7:39 að staðartíma (20:40 GMT) á sunnudegi 1. apríl. Mesti jarðskjálftinn mældist 7.6 á Richter kvarða. Í kjölfarið fór yfir 5 metra há flóðbylgja á strendur Salómonseyja.

Þremur búðum hefur verið komið upp í vesturhluta eyjunnar, þ.e. í Mumamgu, Titana og Numanda þorpum. Sjúkrahús í Gizo, Taro og Sasamunda eyðilögðust að hluta. Aðstöðu verður komið upp á þessum stöðum til að sinna særðum. U.þ.b. 50% heilsugæslustöðva eru eyðilagðar og ekki er hægt að ná sambandi við margar þeirra.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn