14. janúar 2020

Flottir fulltrúar Réttindaskóla UNICEF halda utan á barnaþing

Hópur ungmenna frá skólum sem hlotið hafa viðurkenningu sem Réttindaskólar UNICEF á Íslandi halda í dag utan til Danmerkur til að sækja barnaþing norrænu ráðherranefndarinnar

14. janúar 2020 Hópur ungmenna frá skólum sem hlotið hafa viðurkenningu sem Réttindaskólar UNICEF á Íslandi halda í dag utan til Danmerkur til að sækja barnaþing norrænu ráðherranefndarinnar. Inntak barnaþingsins er að gera Norðurlöndin að besta stað í heimi fyrir börn að alast upp í.

Barnaþingið er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og er skipulagning þingsins í höndum UNICEF í Danmörku. Barnahópar eru að koma frá Grænlandi, Álandseyjum, Færeyjum, Íslandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi til þess að ræða þau málefni sem á þeim brenna og vinna að sameiginlegri yfirlýsingu til þess að koma til ráðamanna þessara landa.

Undirbúningsfundur með Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra var haldinn í síðustu viku og komu fulltrúar íslenska barnahópsins sínum hugðarefnum á framfæri til ráðherra sem var mjög áhugasamur og tók sér góðan tíma til að ræða við börnin. Ráðherra verður sömuleiðis viðstaddur þingið. Svo margt brann á fulltrúum íslenska barnahópsins að þau munu hitta ráðherra á öðrum fundi eftir heimkomu og halda vinnunni áfram. Svo sannarlega til fyrirmyndar.

Fulltrúar íslenska hópsins á barnaþinginu eru auk starfsmanna UNICEF á Íslandi:

Matas Jaudegis, 12 ára, fulltrúi réttindaráðs Vesturbæjarskóla.

Hjördís Freyja Kjartansdóttir, 14 ára, fulltrúi réttindaráðs Laugalækjarskóla.

Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir, 12 ára, fulltrúi réttindaráðs Grandaskóla.

Jóhanna Helga Ingadóttir, 15 ára, fulltrúi réttindaráðs Hagaskóla.

Úlfhildur Tómasdóttir, 12 ára, fulltrúi réttindaráðs Vesturbæjarskóla.

Lovísa Rán Örvarsdóttir Thorarensen, 12 ára, fulltrúi réttindaráðs Melaskóla.

Óskum við þeim góðrar ferðar í dag og góðs gengis á þinginu.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn