18. maí 2016

Fræðslumynd um Sýrland með Ævari vísindamanni

Markmið UNICEF-hreyfingarinnar er að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og virkja þau til samstöðu með jafnöldrum sínum víða um heim. Í ár leggjum við sérstaka áherslu á Sýrland.

Grunnskólaverkefnið okkar, UNICEF-hreyfingin, verður æ vinsælla og aldrei hafa fleiri skólar tekið þátt og nú. Við lukum fyrir skemmstu við fræðslumynd UNICEF-hreyfingarinnar í ár. Hún er unnin í samstarfi við Ævar Þór Benediktsson, sem einnig er þekktur sem Ævar vísindamaður. Sýnt verður brot úr henni í Kastljósi annað kvöld.

Myndin fjallar um áhrif stríðsins í Sýrlandi ásamt því að fræða börn um réttindi sín og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hún er frábrugðin fyrri fræðslumyndum sem gerðar hafa verið í tengslum við UNICEF-hreyfinguna. Í henni er til skiptis fylgst með Ævari vísindamanni hér á Íslandi og börnum í Sýrlandi.

Þar sem viðfangsefnið er stríð biðjum við skólana um að skoða hana með tilliti til yngstu bekkja áður en þeir sýna börnunum hana. Við framleiðslu myndarinnar reyndum við að gera hana þannig úr garði að hún myndi henta sem breiðustu aldursbili en biðjum skólana að meta hvort þeim finnist hún henta yngstu bekkjunum vegna umfjöllunarefnisins – stríðsátaka og áhrifum þeirra á börn.

Ef þeim finnst myndin ekki henta yngstu bekkjum skólans bjóðum við upp á fræðslumyndir fyrri ára sem fjalla ekki um stríð.

„Við hjá UNICEF á Íslandi beinum því sama til þeirra sem vilja sýna börnum sínum fræðslumyndina. Að því sögðu hvetjum við alla til að horfa á hana, enda ekki nema 16 mínútur, afar fróðleg og við reyndum við að gera hana þannig úr garði að hún myndi nýtast sem flestum. Okkur langaði að tækla Sýrlandsstríðið og gefa fólki grunn til að nálgast það á barnvænna formi en í fréttunum. Stríð eru þó auðvitað alltaf dapurleg og erfið – og fullorðnir eru því beðnir um að meta þetta fyrir yngstu börnin. Myndin er á netinu og er opin öllum,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Handritið að myndinni unnum við í samstarfi við Ævar Þór Benediktsson sem er talsmaður UNICEF-hreyfingarinnar í ár. Það var síðan hann Steindór okkar sem tók myndina upp og klippti hana.

Myndinni fylgja glærur til að rifja upp sögur barnanna í myndinni og auðvelda kennurum og börnum að ræða saman um efni myndarinnar. Í glærunum stendur meðal annars:

En áður en lengra er haldið …

… langar okkur að undirstrika að börn á Íslandi þurfa ekki að verða hrædd og óttast stríð hér á landi.

Sem betur fer er Ísland friðsælt land, með engan her.

Hér á landi eru reglulega haldnar frjálsar kosningar og þegar almenningur hefur mótmælt ákaft hafa forystumenn sagt af sér á friðsaman hátt.

Við eigum líka í mjög góðum samskiptum við nágranna okkar.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn