Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi fordæmir aðskilnað barna frá fjölskyldum sínum á landamærum Bandaríkjanna harðlega. „Slíkar aðgerðir og sá aðbúnaður sem birtist okkur í fréttum er með öllu ómannúðlegar og getur skaðað börn fyrir lífstíð. Barn er fyrst og fremst barn, hverjar svo sem aðstæður hans eða hennar eru. Að vista börn í búrum og með ókunnugum er skýrt brot á mannréttindum þeirra. Bandaríkin eru ríki flóttamanna og innflytjenda og það er sárara en tárum taki að horfa upp á aðgerðir stjórnvalda nú.“
Við vísum í aðgerðaáætlun UNICEF til að vernda börn á flótta, sérstaklega lið 2 og 3:
UNICEF leggur til að gripið sé tafarlaust til aðgerða á sex sviðum:
- Vernda börn á flótta og faraldsfæti, sérstaklega fylgdarlaus börn, gegn ofbeldi og misneytingu.
- Hætta að hneppa í varðhald þau börn sem sækja um stöðu flóttamanns eða eru á faraldsfæti.
- Halda fjölskyldum saman, en það er sterkasta vopnið til að tryggja öryggi barna ásamt því að veita börnunum lagalega stöðu.
- Halda öllum börnum á flótta og faraldsfæti í námi, og veita þeim heilbrigðisþjónustu sem og aðra nauðsynlega þjónustu.
- Þrýsta á aðgerðir til að takast á við undirliggjandi orsakir stórfelldrar fjölgunar flóttamanna og fólks á faraldsfæti í heiminum.
- Vinna gegn útlendingahatri, mismunun og jaðarsetningu minnihlutahópa.
Í þessu samhengi er einnig vert að benta á að Bandaríkin eru eina ríki Sameinuðu þjóðanna sem ekki hefur fullgilt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

