03. janúar 2007

Framkvæmdastjóri UNICEF ferðast um flóðasvæðin

Framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy, hóf fimm daga ferðalag sitt í gær um þau lönd sem urðu verst úti í flóðunum. Hún mun skoða aðstæður og meta þarfir þeirra hundruð þúsunda barna sem þar eru og fara yfir neyðaraðstoð UNICEF til þessa. Bellamy mun hitta börn og fjölskyldur þeirra, frjáls félagasamtök, stjórnvöld og fleiri.

Framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy, hóf fimm daga ferðalag sitt í gær um þau lönd sem urðu verst úti í flóðunum. Hún mun skoða aðstæður og meta þarfir þeirra hundruð þúsunda barna sem þar eru og fara yfir neyðaraðstoð UNICEF til þessa.
Bellamy mun hitta börn og fjölskyldur þeirra, frjáls félagasamtök, stjórnvöld og fleiri. Hún mun einnig hitta annað starfsfólk stofnanna Sameinuðu þjóðanna.
,,Svo að neyðaraðstoð okkar sé eins góð og hún getur verið þarf ég að sjá það sem er raunverulega að gerast,” sagði Bellamy. ,,Ég vil að allt það fólk sem hefur þjáðst svo mikið og allir þeir sem hafa lagt nótt við dag í neyðarhjálpina, viti að UNICEF lítur á þessa neyðaraðstoð sem forgangsverkefni.”
Bellamy kom til Sri Lanka í gærmorgun og mun ferðast gangandi og með þyrlu um suðurhluta landsins. Í dag, mánudag, mun hún ferðast um norðurhluta eyjunnar, og í kvöld heldur hún blaðamannafund í höfuðborginni, Colombo.

Á þriðjudagsmorgun verður Bellamy komin til Jakarta, en hún mun ferðast um Indónesíu í þrjá daga. Þar mun hún hitta fyrir stjórnmálamenn og ferðast um Banda Aceh-héraðið, þar sem eyðileggingin er mikil.

Á forsíðu www.unicef.org er hægt að sjá ýmis myndbönd, þ.á.m. viðtal Wolf Blitzer við Carol Bellamy á CNN, viðbrögð velgjörðarsendiherrans Miu Farrow við hamförunum og upptöku frá neyðaraðstoð UNICEF og flutning á neyðargögnum.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn