24. mars 2020

Fyrsta smitið í Sýrlandi: Ótti við útbreiðslu í yfirfullum flóttamannabúðum

Fyrsta staðfesta smitið af Covid-19 kórónaveirunni er komið fram í Sýrlandi sem vekur áhyggjur um að aðeins sé tímaspursmál áður en veiran berist í yfirfullar flóttamannabúðir. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) varar við því að laskað heilbrigðiskerfi landsins hafa enga burði til að greina né takast á við stóran faraldur eftir níu ár af stríði.

24. mars 2020 Fyrsta staðfesta smitið af Covid-19 kórónaveirunni er komið fram í Sýrlandi sem vekur áhyggjur um að aðeins sé tímaspursmál áður en veiran berist í yfirfullar flóttamannabúðir. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) varar við því að laskað heilbrigðiskerfi landsins hafa enga burði til að greina né takast á við stóran faraldur eftir níu ár af stríði.

Óttinn nú beinist ekki síst að viðkvæmum svæðum í norðvestur– og norðausturhluta Sýrlands þar sem hundruð þúsunda hafa flúið heimili sín síðustu mánuði og átök hafa harðnað undanfarið.

Í Idlib-héraði í norðvesturhlutanum eru um 900 þúsund manns sem búa í tímabundnum og yfirfullum flóttamannabúðum, tjöldum, skólum, yfirgefnum verksmiðjum og þar af er ríflega helmingurinn börn.

Þessi ótti um varnarleysi Sýrlendinga gagnvart faraldrinum á einnig við um flóttamannabúðir í nágrannalöndum enda mannmergðin þar mikil og hreinlæti af skornum skammti. UNICEF hefur varað við því að skelfingarástand geti skapast í flóttamannabúðum á Grikklandi en stór hluti flóttamanna þar kemur frá Sýrlandi.

Á grísku eyjunni Lesbos eru til dæmis Moria-flóttamannabúðirnar sem hafa pláss fyrir 2.800 manns. Þar eru nú 19 þúsund manns. Engum dylst hversu fljótt Covid-19 myndi breiðast út við svo skelfilegar aðstæður þar sem börn, á annað þúsund fylgdarlaus, hafa ekki fullnægjandi aðgang að hreinu vatni, hreinlætisvörum og húsnæði. Nær ógjörningur yrði fyrir íbúa í Moriu að verjast veirunni við þær aðstæður sem þar eru. UNICEF hefur því enn á ný ítrekað áskorun sína um að allt flóttafólk verði flutt yfir á meginlandið eins fljótt og auðið er.

Þetta er UNICEF að gera til að bregðast við COVID-19 faraldrinum:

  • Grípum til nauðsynlegra aðgerða á starfsstöðvum UNICEF til að koma í veg fyrir smit og vinna gegn útbreiðslu með sóttvörnum. Meðal annars með því að útvega hreint vatn, hreinlætisvörur og heilbrigðisþjónustu. Við vitum öll hversu handþvottur er mikilvægur nú um stundir.
  • Áreiðanleg upplýsingagjöf til almennings og virkjun samfélaga til aðgerða. Barátta gegn rangupplýsingum og falsfréttum.
  • Vernd barna, þar á meðal félags- og sálfræðiþjónusta.
  • Að tryggja að börn hafi aðgang að samfelldri menntun og flosni ekki upp frá námi við þær aðstæður sem nú eru.

UNICEF þarf á þínum stuðningi að halda til að ná til og vernda þennan viðkvæma hóp barna og fjölskyldna þeirra við þessar erfiðu aðstæður gegn heimsfaraldri Covid-19 kórónaveirunnar. Þú getur lagt þitt af mörkum með því að senda SMS-ið BARN í númerið 1900 (1.900 kr.).

Þú getur einnig styrkt söfnun UNICEF á Íslandi með framlagi að eigin vali hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn