26. júní 2020

Aid Transparency: Gagnsæi UNICEF eitt það besta í heiminum

Samkvæmt nýrri úttekt samtakanna Aid Transparency fyrir árið 2020 er UNICEF í sjötta sæti hvað varðar gagnsæi af 47 stærstu samtökunum og stofnunum á sviði þróunarmála í heiminum. Fær UNICEF einkunnina „Very Good“ í sjálfstæðri úttekt Aid Transparency.

UNICEF hóf þáttöku í International Aid Transpacency Initiative (IATI) árið 2012 en með því framtaki skuldbinda samtök og stofnanir sig til að innleiða og aðlaga sig að alþjóðlegum stöðlum varðandi gagnsæi og áreiðanleika. Er það tilkomið vegna þess að vöntun var á samanburðarhæfum og stöðluðum gögnum frá þessum aðilum til að sjá hverjir væru að gera hvað og hvar á sviði mannúðarmála. Síðan UNICEF hóf þessa innleiðingu hefur stofnunin unnið sig upp í efsta flokkinn með einkunnina „Very Good“ auk þess sem UNICEF fékk viðurkenningu árið 2016 fyrir mestar framfarir allra samtaka.

Hægt er að fræðast meira um gagnsæisstefnu UNICEF hér og hér.

Hægt er að sjá niðurstöður Aid Transparency Index ársins 2020 hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn