06. september 2019

Gefðu framtíðinni forskot

Góðgerðarfélög á Íslandi hafa tekið höndum saman undir forystu Almannaheilla um að kynna erfðagjafir fyrir almenningi. Erfðagjafir eru vinsæll valkostur víða um heim þegar kemur að ráðstöfun eigna að lífshlaupi loknu, en þær felast í að ánafna hluta af eigum sínum eftir sinn dag til góðgerðafélags sem viðkomandi er annt um

Góðgerðarfélög á Íslandi hafa tekið höndum saman undir forystu Almannaheilla um að kynna erfðagjafir fyrir almenningi. Erfðagjafir eru vinsæll valkostur víða um heim þegar kemur að ráðstöfun eigna að lífshlaupi loknu, en þær felast í að ánafna hluta af eigum sínum eftir sinn dag til góðgerðafélags sem viðkomandi er annt um. Hér á landi hefur lítið verið rætt um erfðagjafir en góðgerðafélög fá reglulega fyrirspurnir um þennan valkost. Þá gerir nýleg lagabreyting það að verkum að erfðagjafir eru nú undanþegnar erfðafjárskatti.

Félögin sem standa að átakinu eru auk Almannaheilla, Blindrafélagið, Krabbameinsfélagið, Rauði krossinn, SOS Barnaþorp, Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og UNICEF á Íslandi. Yfirskrift átaksins er „Gefðu framtíðinni forskot.“

Átakið hófst með birtingu á kynningarmyndbandi sem sjá má hér. Í kynningarmyndbandinu sjást skemmtilegar myndir frá liðnum áratugum þar sem framfarir og uppbygging á samfélagsins eru í forgrunni.

Félögin sem standa að baki átakinu blása einnig til málþings föstudaginn 13. september kl. 11:30 í IÐNÓ, á alþjóðlegum degi erfðagjafa, þar sem rætt verður um lagaleg atriði sem tengjast erfðagjöfum og hvernig þær geta nýst til góðra verka. Málþingið er öllum opið. Þá hafa félögin komið á fót upplýsingasíðu um erfðagjafir á slóðinni www.erfdagjafir.is.

​Kynslóðin sem er að komast á eftirlaunaaldur hefur kynnst byltingarkenndum samfélagsbreytingum á sinni ævi og afkoma flestra er mun betri en foreldra þeirra. Stór hluti þessa hóps styrkir góð málefni reglulega og félögin hafa orðið vör við áhuga þessa hóps á að halda áfram að hafa áhrif eftir sinn dag.

„Markmiðið með kynningarverkefninu er að þeir sem vilja styðja við góð málefni viti af þessari styrktarleið. Mikill meirihluti Íslendinga styður félagasamtök til góðra verka og margir þekkja af eigin reynslu hversu mikilvæg þessi félög eru samfélaginu. Erfðagjafir eru víða vel þekktar erlendis og til dæmis gefa um fjórðungur Breta sem gera erfðaskrá erfðagjöf til góðgerðarfélags. Eftir að erfðafjárskattur á erfðagjafir var felldur niður er mikilvægt að fólk viti að fjármunirnir renna að fullu til þess góða málsstaðar sem það velur,“ segir Ketill B. Magnússon, sem leiðir verkefnið fyrir hönd Almannaheilla, samtaka þriðja geirans.

Erfðagjafir skipta miklu máli fyrir góðgerðafélög á Íslandi og þær hafa nýst á fjölbreyttan og mikilvægan hátt.

Til þess að gefa erfðagjöf er nauðsynlegt að gera erfðaskrá en mælt er með að ráðfæra sig við lögfræðing þegar gengið er frá erfðskrá til að gengið sé úr skugga um að hún sé gild samkvæmt lögum.

Allar upplýsingar um erfðagjafir til UNICEF á Íslandi finnur þú hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn