18. desember 2017

Gjafir sem bjarga börnum vinsælar jólagjafir í ár

„Það er greinilegt að fólk vill vera tímanlega í ár, og finnst þægilegt að geta verslað gjafirnar sínar á netinu í rólegheitunum“,“ segir Vala Karen hjá UNICEF á Íslandi, en hún keppist nú við að senda jólakveðjur með hjálpargögnum til heimila um allt land.

Nú eins og síðastliðin jól eru Sannar gjafir UNICEF vinsælar í jólapakka landsmanna. Jólagjafir frá Íslandi bárust til barna um allan heim um síðustu jól og stefnir í að enn fleiri börn muni njóta góðs af Sönnum gjöfum frá Íslandi þetta árið.

„Það er greinilegt að fólk vill vera tímanlega í ár, og finnst þægilegt að geta verslað gjafirnar sínar á netinu í rólegheitunum“,“ segir Vala Karen hjá UNICEF á Íslandi, en hún keppist nú við að senda jólakveðjur með hjálpargögnum til heimila um allt land.

Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir börn í neyð. Þær eru stórsniðugar jólagjafir og jólakort fyrir vini og fjölskyldu en mikið úrval í öllum verðflokkum má finna á www.sannargafir.is. Gjöfin er keypt í nafni þess sem þú vilt gleðja og UNICEF sér síðan til þess að koma hjálpargögnunum til barna þar sem þörfin er mest.

Hlý teppi og jarðhnetumauk vinsælust
Vinsælustu gjafirnar fyrir þessi jólin er hlý teppi og jarðhnetumauk, en einnig hafa hópar sameinast um kaup á vatnsdælum. Hlýjum teppum er meðal annars dreift í flóttamannabúðum þar sem börnum er kalt og verið er að setja upp vatnsdælur í flóttamannabúðum fyrir Rohingja sem hafa flúið frá Myanmar yfir til Bangladess.

„Allar gjafirnar eiga það sameiginlegt að bæta líf barna sem þurfa á hjálp okkar að halda. Nú er til dæmis mikil þörf fyrir vítamínbætt jarðhnetumauk og næringarmjólk til að bjarga börnum sem eru alvarlega vannærð, til dæmis í Jemen og Suður-Súdan. Það er því yndislegt að sjá hversu margir kjósa að gefa Sannar gjafir um jólin,“ segir Vala Karen.

Það tekur enga stund að versla jólagjafirnar í vefverslun UNICEF, www.sannargjafir.is. Sannar gjafir eru í öllum verðflokkum og eru til dæmis sniðugar jólagjafir fyrir þá sem eiga allt, hlýleg jólakveðja til vina og fjölskyldu erlendis eða skemmtileg tækifærisgjöf til að gleðja leynivininn í vinnunni. Einnig er hægt að kíkja á skrifstofu UNICEF á Íslandi á Laugavegi 176 og velja gjafir á staðnum og fræðast um hvernig gjafirnar koma að góðum notum.

Bólusetningar bjarga lífum barna
Engin lyf eru til gegn mænusótt og eina leiðin til að koma í veg fyrir að veikin valdi lömun er bólusetning. UNICEF vinnur að því að útrýma mænusótt í heiminum með því að bólusetja börn gegn sjúkdómnum. Nú er veikin einungis landlæg í tveimur löndum, Pakistan og Afganistan, og nú þarf að útrýma sjúkdómnum fyrir fullt og allt! Þú getur gefið bóluefni gegn mænusótt sem sanna jólagjöf!

Vatnshreinsitöflur galdra fram drykkjarhæft vatn
Milljónir barna hafa ekki aðgengi að hreinu drykkjarvatni eins og við erum vön hér heima. Vatnshreinsitöflur eru sendar á svæði þar sem hreint vatn er af skornum skammti. Þessar bráðsniðugu töflur geta á örskotsstundu galdrað fram drykkjarhæft vatn úr óhreinu vatni og með því komið í veg fyrir útbreiðslu lífshættulegra smitsjúkdóma.

Jarðhnetumauk gerir kraftaverk fyrir vannærð börn
Vítamínbætt jarðhnetumauk gegnir lykilhlutverki á svæðum þar sem börn eru í lífshættu vegna vannæringar, meðal annars í Bangladess, Nígeríu og Jemen. Jarðhnetumaukið inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, vítamín og steinefni sem börn þurfa og gerir kraftaverk fyrir vannærð börn. Það er tilbúið til neyslu beint úr pakkanum. Í flestum tilfellum þurfa börn einungis þrjá pakka á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.

Ormalyf í jólapakkann
Ormalyf eru kannski ekki glamúrgjöfin í ár en ormalyf hafa sannarlega mikið notagildi! Á hverju ári látast skelfilega mörg börn af völdum vannæringar vegna sníkjudýra í meltingarvegi. Sníkjudýrin ræna börnin nauðsynlegum næringarefnum og gera þau bæði máttvana og varnarlaus gegn sjúkdómum. Lyfin hjálpa börnum að losna við sníkjudýrin og þau skelfilegu óþægindi sem þeim fylgja og hafa til að mynda verið send til barna í Rúanda, Burkina Faso og Pakistan.

Fleiri
fréttir

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira
Fara í fréttasafn