25. janúar 2007

Gleði til góðgerða

Á dögunum héldu nemendur Menntaskólans í Reykjavík árlega áheitasöfnun sína Gleði til góðgerða og söfnuðust alls 254.874 krónur sem runnu óskertar til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Nemendur fengu viðurkenningarskjal í tilefni þessa og UNICEF þakkaði þeim kærlega fyrir framlagið og fyrir að vekja athygli á málstaðnum með stórskemmtilegri söfnun.

Á dögunum héldu nemendur Menntaskólans í Reykjavík árlega áheitasöfnun sína Gleði til góðgerða og söfnuðust alls 254.874 krónur sem runnu óskertar til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF.

Svanhvít Júlíusdóttir forseti Framtíðarinnar, nemendafélags MR, Guðrún Sóley Gestsdóttir ritari og Jón Benediktsson meðstjórnandi afhentu Snjólaugu Aðalgeirsdóttur fjáröflunarfulltrúa UNICEF Ísland styrkinn í dag. Barnahjálpin veitti nemendum viðurkenningarskjal í tilefni þessa og þakkaði þeim kærlega fyrir framlagið og fyrir að vekja athygli á málstað UNICEF með stórskemmtilegri söfnun.

Nemendur MR lögðu margir hverjir mikið á sig til að safna áheitum eins og að elta kennara í heilan dag, syngja, tvíburar gengu í fötum hvort af öðru, strákar klæddust kvenmannsfötum og einn nemandi klæddi sig úr einni flík á klukkustundar fresti.

Þar sem neyðin er stærst
Framlagið frá nemendum MR rennur til almennra verkefna UNICEF þar sem neyðin er stærst. Í 60 ár hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í nær 160 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára. UNICEF útvegar flestar bólusetningar til barna í þróunarlöndunum, styður heilsugæslu- og næringarverkefni fyrir börn, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn