Gleðilegt nýtt ár og þúsund þakkir fyrir ómetanlegan stuðning á nýliðnu ári!
Allt okkar starf byggist á frjálsum framlögum og því skiptir hver einasta króna máli. Á árinu sem er að líða nutum við mikils stuðnings - nokkuð sem við erum afar þakklát fyrir. Margt smátt gerir eitt stórt og saman gerum við kraftaverk.
Á árinu 2013 náðu til dæmis fleiri börn fimm ára aldri en nokkru sinn fyrr í sögunni! Tíðni barnadauða hefur lækkað gríðarlega og það er engin tilviljun heldur afrakstur þrotlausrar baráttu.
Á síðastliðnu ári sátu líka fleiri börn á skólabekk í heiminum en nokkru sinni fyrr.
Fleiri höfðu aðgengi að hreinu vatni en nokkru sinni áður.
Fleiri börn fengu meðferð við HIV en nokkru sinni fyrr.
Saman hrintum við af stað stærsta bólusetningarátaki sem ráðist hefur verið í í Mið-Austurlöndum. Við brugðumst hratt og örugglega við eftir stærsta fellibyl sem gengið hefur á land í sögunni - fellibylinn sem olli gríðarlegri eyðileggingu á Filippseyjum. Við veittum lífsnauðsynlega hjálp í Sýrlandi og nágrannaríkjunum í umfangsmestu mannúðaraðgerðum sem UNICEF hefur nokkru sinni staðið fyrir.
Við sinntum líka neyðarhjálp á stöðum sem við heyrum sjaldan um en þar sem skelfingarástand ríkir af ýmsum ástæðum: Mið-Afríkulýðveldinu, Suður-Súdan og Tjsad. Við vorum áfram til staðar eftir hörmungar á stöðum þar sem kastljós fjölmiðla er löngu farið annað en þörfin er enn mikil: Á Haítí, á Sahel-svæðinu og í Sómalíu.
Við sinntum uppbyggingarstarfi og réttindagæslu barna í 190 ríkjum um allan heim!
Við börðumst fyrir málefnum sem gjarnan fara lágt og hringdum bjöllum í fjölmiðlum og hjá þjóðarleiðtogum svo þau kæmust á dagskrá: Mikilvægi þess að börn séu skráð við fæðingu og séu ekki "ósýnileg" í kerfinu. Mikilvægi þess að berjast með kjafti og klóm gegn ofbeldi gegn börnum. Mikilvægi menntunar barna á neyðartímum.
Við vorum til staðar í 190 ríkjum og börðumst af krafti fyrir réttindum barna - allra barna, hvar sem er.
Þetta gerðum við saman.
Við alla heimsforeldrana okkar, öll þau sem styrktu neyðarsafnanirnar okkar, öll þau sem veittu okkur frjáls framlög, stór og smá - og öll þau sem hjálpuðu okkur í sjálfboðavinnu og með því að aðstoða okkur við að koma skilaboðum áfram viljum við því segja: ÞÚSUND ÞAKKIR!
