08. júlí 2005

Góðir tónleikar, gott málefni og símsvörun!

Þegar svo stórt verkefni eins og útsending Live8 var á Sirkus þarf að huga að mörgu. Heimsforeldraátak UNICEF stóð yfir alla útsendinguna, eða í 12 klukkustundir, og gafst fólki kostur á að hringja í símann 5 62 62 62. Hinum megin á línunni voru alls 23 einstaklingar og fjölskyldumeðlimir þeirra, í þjónustuveri Og Vodafone

Þegar svo stórt verkefni eins og útsending Live8 var á Sirkus þarf að huga að mörgu. Heimsforeldraátak UNICEF stóð yfir alla útsendinguna, eða í 12 klukkustundir, og gafst fólki kostur á að hringja í símann 5 62 62 62. Hinum megin á línunni voru alls 23 einstaklingar og fjölskyldumeðlimir þeirra, í þjónustuveri Og Vodafone.

Pétur Björn Jónsson, hópstjóri þjónustuvers Og Vodafone, sagði að tveir ungir menn, Davíð Gunnarsson og Ólafur Jakobsson, hafi verið 9 klukkustundir hvorir um sig, en tekur fram að það sé ekki hallað á neinn þó svo þeir séu nefndir sérstaklega. „Allir stóðu sig með stakri prýði.“

„Svörunin gekk vel og greinilegt að þegar númerið birtist á skjánum skilaði það sér strax í auknum fjölda símtala. Enn meiri aukning varð síðan þegar Sirkus var með útsendingu úr myndveri með stuttum viðtölum,“ sagði Pétur og bætir við að fólkið sem hringdi hafi verið afskaplega jákvætt og meira en til í að leggja góðu málefni lið. 

Samkvæmt Pétri var fólkið í svöruninni afskaplega ánægt með daginn, „enda margt verra en að sitja í góðra vina hópi, borða afbragðs veitingar, horfa á frábæra tónleika og styrkja gott málefni um leið!“

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn