Vegna kerfislægra mistaka hjá viðskiptabanka UNICEF á Ísandi voru sendir greiðsluseðlar til þeirra heimsforeldra sem styrkja UNICEF með beingreiðslusamningi. UNICEF á Íslandi biður innilegrar velvirðingar á þessum mistökum.
Millifærsla af reikningi á að eiga sér stað með eðlilegum hætti.
Tekið skal fram að UNICEF á Íslandi ber engan kostnað af mistökunum.
Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast beinið þeim til tengiliðs heimsforeldra, Bryndísar Lúðvíksdóttur í síma 552 6300 eða á netfangið bryndis@unicef.is.
Við þökkum heimsforeldrum stuðninginn sem endranær.
