Áfangar í þroska ungra barna: Ráð fyrir foreldra

Hagnýt ráð fyrir alla uppalendur

Vissir þú að allt að 75% af hverri máltíð barns er nýtti í að þroska heila þess? Eða að yfir 80% af heilanum er mótaður þegar barnið nær þriggja ára aldri?*  

Með hverju faðmlagi og hverjum kossi, með hverri heilnæmri máltíð og hverjum leik ert þú að ýta undir heilaþroska barns þíns.  

Hér eru nokkur ráð til þess að veita barninu þínu farsælt upphaf:  

Ráð varðandi hvítvoðunga

Vissir

þú að...

innan örfárra daga geta börn brosað tilbaka þegar fólk brosir til þeirra?

  • Bjóddu upp á leiðir fyrir barnið þitt til þess að sjá, heyra, hreyfa sig frjálst og snerta þig. Þú ættir að sjá barnið hreyfa útlimi sína handahófskennt. Barnið lærir hægt og rólega að stjórna hreyfingum sínum.  
  • Horfðu í augu barnsins og brostu til baka þegar það brosir til þín. Þú ættir að sjá jákvæð viðbrögð við svipbrigðum þínum, hreyfingum og látbragði hjá barninu.  
  • Talaðu mjúklega við barnið og notaðu „barnatal“. Bæði foreldrar og aðrir umönnunaraðilar ættu að hafa samskipti við hvítvoðunginn. Þú tekur eftir því fljótlega að barnið getur heyrt í þér og byrjar að leggja það sem þú segir á minnið og endurtaka það.  
  • Breyttu raddblæ þínum blíðlega. Talaðu hraðar/hægar, skrækara/dýpra eða hærra/lægra. Fylgstu með viðbrögðum bæði í svipbrigðum og líkamstjáningu barnsins og sjáðu hvernig það tjáir sig við þig.  
  • Settu barnið á magann og hristu leikfang eða bjöllu fyrir framan það. Lyftu leikfanginu hægt og rólega til þess að hvetja barnið til að lyfta höfðinu og bringunni í tilraun til að fylgjast með því. Þetta hjálpar barninu að fylgja leikfanginu með augunum og æfa sig að halda höfði.  
  • Strjúktu, róaðu og haltu á barninu þínu. Þú sérð hvernig barninu líður vel og er ánægt með að láta að halda á sér og faðma sig.  
  • Vertu með barnið húð-við-húð. Að finna lyktina af þér og nærveru þína ætti að róa barnið og veita því öryggistilfinningu.  

Ráð fyrir foreldra 1-6 mánaða barna

Vissir

þú? 

1-3 mánaða börn sjá best hluti sem eru um 20-30 cm frá þeim. Um 3 mánaða hafa börn lengra sjónsvið. 

  • Útvegaðu barninu leiðir til þess að sjá, heyra, finna, hreyfa sig frjálst og snerta þig. Barnið byggir hægt og rólega upp traust til þín. 
  • Hreyfðu litríka hluti hægt fyrir framan barnið og leyfðu því að sjá og teygja sig eftir þeim. Einfalt heimagert leikfang eins og hrista getur fangað athygli barnsins með hljóði sínu.  
  • Brostu og hlæðu með barninu. Þú ferð fljótlega að sjá barnið brosa til baka.  
  • Talaðu við barnið og hermdu eftir hljóðum þess eða hreyfingum. Þú ættir að sjá barnið finna andlit þitt hægt og rólega og reyna að herma eftir þér á móti.    
  • Hjálpaðu barninu að fylgja hlut með augunum. Þegar barnið festir augu á einhverju skaltu hreyfa hlutinn rólega frá einni hlið til annarar, upp og niður. Þú ættir að sjá barnið reyna að fylgja hlutnum eftir með augunum.  
  • Hvettu barnið þitt til að teygja sig eftir öruggu leikfangi. Prófaðu að bjóða barninu eitthvað eins og plastglas. Þú ættir að taka eftir því að barnið reynir að grípa í eða snerta það.  
  • Klipptu út einfaldar myndir af hlutum sem barnið þekkir, fólki og dýrum. Reyndu að finna myndir sem sýna nóg af litum, áferðum, staðsetningum og andlitum. Talaðu um myndirnar þegar barnið horfir á þær. Fylgstu með hvernig barnið hlustar á það sem þú segir og tekur þátt á sinn hátt.  
  • Leiktu við barnið. Leggðu barnið á magann og láttu fingur þína labba í átt að því. Kitlaðu barnið mjúklega og segðu „hér koma puttarnir mínir, hér koma þeir nær og nær og ætla að ná þér!“ Til að breyta til í leiknum getur þú látið fingurna labba hægt eða hratt, eða beðið mis lengi eftir því að kitla barnið. Barnið ætti að sýna gleði með því að hlæja eða skríkja.

Ráð fyrir foreldra 6-9 mánaða barna

Vissir

þú?

Þegar barnið er 6 mánaða má það borða hvað sem er nema hunang, sem ætti að bíða með að gefa þangað til barnið er orðið eins árs.

  • Gefðu barninu nægan tíma til þess að svara ef þú spyrð spurninga. Teldu upp að 10 í huganum. Ef ekkert svar kemur skaltu svara spurningunni sjálf/ur. Prófaðu auðveldari spurningu næst.  
  • Segðu nafn barnsins eins mikið og hægt er. Barnið lítur upp til að sjá hver er að segja nafnið og reynir að teygja sig í átt til þeirra.  
  • Til að forðast það að hræða barnið skaltu ekki tala eða syngja of hátt.  
  • Brostu eins mikið og hægt er og veittu barninu huggun og öryggi.  
  • Gefðu barninu hreina, örugga og litríka hluti, eins og viðarsleif eða plastskál til þess að teygja sig í og snerta, eða berja á og henda.  
  • Búðu til einfaldar myndabækur, púsl, brúður og dúkkur til að ýta undir forvitni barnsins og hjálpa því að læra nýja hluti. Til að búa til einfalt púsl getur þú hreinlega límt mynd á pappaspjald eða annan efnivið og klippt í hluta. 

Ráð fyrir foreldra 9-12 mánaða barna

Vissir

þú?

Nálgastu lærdómsferli barnsins þíns alltaf á jálkvæðan hátt til þess að efla sjálfsöryggi og -traust þess. Reyndu að segja „já“, „flott“, „vel gert“ oftar en „nei“ „ljótt“ eða „ekki gott“. 

  • Farðu í feluleik með barninu og sjáðu hvort það geti fundið hluti sem þú felur. Þú getur falið eitthvað undir efnisbút og sagt „hvert fór það?“, „getur þú fundið það?“. Þú ættir að sjá barnið verða forvitnara og viljugra til þess að komast að því hvað varð um hlutinn.  
  • Segðu barninu þínu nöfn hluta og fólks. Barnið ætti að sýna áhuga og byrja fljótt að mynda tengingar milli orða og hluta eða fólks.  
  • Sýndu barninu hvernig hægt er að tákna hluti með höndunum, eins og „bless bless“. Barnið ætti bráðlega að mynda tengingu milli hreyfingarinnar og talaða orðsins og byrja að herma eftir þér og vinka bless sjálft.  
  • Bentu á augu, nef og munn dúkku. Snertu þann líkamspart sem þú sýnir á dúkkunni svo strax á þér eða barninu. Taktu í hönd barnsins og aðstoðaðu það við að snerta augu, munn og nef sitt, dúkkunnar og þitt. Barnið lærir hægt og rólega að tengja þessi mismunandi orð og tengja við eigin líkama.  

Ráð fyrir foreldra 1-2 ára barna

Vissir

þú?

Börn eru sérstaklega glöð þegar þau sjá að þau eru að gleðja fullorðna fólkið í kringum sig? 

  • Gefðu barninu þínu hluti til að setja í og taka upp úr ílátum. Barnið reynir að taka hluti upp úr og setja ofan í sjálft, sem er gott fyrir samhæfingu handa og augna.  
  • Gefðu barninu hluti til þess að stafla. Barnið ætti að reyna að stafla hlutum sjáft og láta þá detta, eða stafla þangað til allt dettur niður.  
  • Spurðu barnið einfaldra spurninga og svaraðu tilraunum barnsins til þess að tala. Barnið ætti að vera viljugt til þess að eiga samskipti með því að svara og/eða spyrja áfram spurninga. 
  • Reyndu að tala um mismunandi aðstæður við barnið. Talaðu til dæmis um náttúruna, myndir og hluti úr nærumhverfinu. Fljótlega ætti barnið að byrja að hreyfa sig um og kanna umhverfið.  
  • Fylgstu með hvað barnið gerir og segðu frá því. „Þú ert að setja hluti ofan í kassann“. Barnið nýtur þess að sýna þér hvað það hefur lært og þannig eflist sjálfstraust þess.  
  • Leiktu við barnið og bjóddu því aðstoð. „Gerum þetta saman. Hérna eru fleiri steinar til þess að setja í kassann þinn.“ Þessar uppgvötanir ættu að vekja upp gleði og sjálfstraust hjá barninu.  
  • Notaðu hvert tækifæri til þess að eiga samtal, eins og á matartímum, á meðan barnið er baðað eða á meðan þú ert að vinna nálægt barninu. Barnið ætti fljótlega að skilja hvað þú ert að segja og vera fært um að fylgja einföldum fyrirmælum.  
  • Búðu til leik úr einföldum spurningum. „Hvar er táin þín?“ eða „Hvar er fuglinn?“. Þið getið skoðað myndir og talað um það sem þið sjáið. Barnið ætti að sýna meiri og meiri áhuga og vilja til þess að tjá sig um það sem það sér og heyrir.  

Ráð fyrir foreldra barna tveggja ára og eldri

Vissir

þú?

Börn læra hraðar þegar þeim er kennt að hegða sér vel en þegar þau eru skömmuð fyrir að hegða sér illa.

  • Spurðu einfaldra spurninga og hlustaðu eftir svörunum. Hvettu barnið til að tala: „Hvað er þetta?“, „Hvar er glugginn?“, „Hvor boltinn er stærri?“, „Má bjóða þér rauða glasið?“. Þú ættir að taka eftir vaxandi áhuga á því að eiga samskipti og svara spurningum hjá barninu.   
  • Lestu sögur fyrir barnið og spurðu spurninga um það sem þið sjáið í bókinni. Þú ættir að taka eftir því að barnið leggur á minnið og reynir að endurtaka það sem þið lesið.  
  • Hjálpaðu barninu að læra að telja með því að spyrja „Hversu margir?“ og telja hluti saman. Barnið kemur til með að gera mistök fyrst um sinn, en lærir af því að endurtaka hlutina oft.  
  • Bjóddu barninu þínu hringi og önnur form klippt út úr lituðum pappír til þess að bera saman og flokka. Barnið ætti að njóta þess að flokka hluti og lærir að tengja saman og mynda sambönd milli mismunandi hluta, lita og forma.  

*Heimildir::Steen, The Evolving Brain: The Known and The Unknown, 2007;Dekaban, Annals of Neurology, 1978.