19. október 2016

Hálf milljón barna í hættu í Mósúl

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, varaði í gær við því að meira en hálf milljón barna og fjölskyldur þeirra í Mósúl verði í mikilli hættu næstu vikur. Til stendur að írakski herinn og hersveit Kúrda taki borgina úr höndum liðsmanna hins svokallaða Íslamska ríkis sem hafa ráðið lögum og lofum þar í rúm tvö ár. Borgin er sú næststærsta í Írak og búist er við mikilli hörku í baráttunni.

Fjöldi barna gæti nú þurft að flýja heimili sín, orðið innlyksa á milli víglína á átakasvæðinu eða orðið fyrir beinum árásum. Fjöldi barna og fjölskyldna hefur þegar flúið frá borginni.

Ikhlas, 6 ára, flúði Mósúl og býr nú í flóttamannabúðum sunnan við borgina.

UNICEF kallar eftir því að allir hlutaðeigandi aðilar í átökunum um Mósúl virði alþjóðleg mannúðarlög og verndi börn. Genfarsamningarnir og viðbætur við þá kveða skýrt á um að aðilar átaka skuli til dæmis gera greinarmun á almenningi og hermönnum - og þeir skulu beina aðgerðum sínum að hernaðarlegum skotmörkum eingöngu. Bannað er að skjóta á skóla, sjúkrahús, leikskóla og leikvelli.

Undanfarna mánuði hefur UNICEF einnig undirbúið neyðaraðstoð fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Við erum tilbúin með verulegt magn hjálpargagna sem mun nýtast um 150 þúsund manns og stefnum á að auka það í 350 þúsund á næstu dögum og vikum. Sjálboðaliðar eru einnig í viðbragðsstöðu, tilbúnir að annast börn og veita þeim sálræna aðstoð. Starfsfólk UNICEF vinnur nú allan sólarhringinn til að tryggja það að hvar sem börnin verða, verði þau ekki ein.

Heimsforeldrar gegna þar lykilhlutverki. Á Íslandi eru vel yfir 25 þúsund heimsforeldrar sem gæta að velferð barna um allan heim. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um heimsforeldra hér: http://www.unicef.is/heimsforeldrar

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn