Þegar feillibylurinn Idai reið yfir suðurströnd Afríku með tilheyrandi flóðum þann 15. mars varð eyðileggingin gífurleg, þá sérstaklega í hlutum Mósambík, Simbabve og Malaví. Hamfarirnar eru taldar þær verstu í sunnanverðri Afríku síðustu áratugi. Innviðir á svæðunum eru í rúst - skólar, heimili, spítalar, vatnsveitukerfi, brýr og vegir hafa gjöreyðilagst - og ljóst að uppbygging mun taka langan tíma. Það sem verra er að spáð er áframhaldandi rigningu á svæðinu næstu vikur.
Meira en 1,5 milljónir barna eiga nú um sárt að binda vegna þessara hamfara. Gífurleg neyð ríkir á svæðinu og UNICEF hefur sérstakar áhyggjur af smitsjúkdómum á borð við kóleru sem geta breiðst hratt út við neyðaraðstæður sem þessar. UNICEF leggur því allt kapp við að útvega hreint drykkjarvatn, útdeila vatnshreinsitöflum og undirbúa bólusetningarátak gegn kóleru sem mun ná til 900 þúsund manns.
Snögg viðbrögð eru lífsnauðsynleg
UNICEF er á vettvangi og hefur þegar hafið umfangsmiklar neyðaraðgerðir. Í forgangi er að tryggja öryggi og heilsu barna og útvega þeim hreint drykkjarvatn, hreinlætisaðstöðu og næringu. Einnig er lögð áhersla á að tryggja að börn skiljist ekki að frá foreldrum sínum og sameina börn sem hafa misst fjölskyldumeðlimi.
Þá vinnur UNICEF náið með yfirvöldum að því að veita þeim sem komist hafa í skjól í hjálparmiðstöðvar hreint vatn, heilbrigðisþjónustu og hreinlætisaðstöðu, auk þess að tryggja áframhaldandi menntun barna á skólaaldri með því að setja upp bráðabirgða námssvæði og dreifa skólagögnum.
Ljóst er að hamfarirnar hafa kostað fjölda mannslífa en mun fleiri eru nú í hættu vegna uppskerubrests og smistjúkdóma. Mikið verk er fyrir höndum næstu mánuði til að tryggja öryggi barna. Því biðlar UNICEF á Íslandi til almenning um að styðja neyðaraðgerðir UNICEF í Mósambík, Simbabve og Malaví.
Á hverju ári bregst UNICEF við neyðarástandi í yfir 50 löndum. Snögg viðbrögð eru lífsnauðsynleg þegar neyðarástand brýst út. Neyðarsjóður UNICEF gerir okkur kleift að bregðast samstundis við þegar hamfarir verða einsog í sunnanverðri Afríku. Hægt er að styðja neyðaraðgerðir UNICEF hér.


