22. maí 2020

Harðnandi átök í Úkraínu: Fjöldi barna fallið á árinu

Á sama tíma og börn og fjölskyldur þeirra í austurhluta Úkraínu búa við ferðatakmarkanir vegna COVID-19 heimsfaraldursins hafa harðnandi átök kostað fjölda barna lífið. Aukin átök og heimsfaraldur hafa gert lífið enn óbærilegra fyrir þau 430 þúsund börn sem hafa mátt þola stríðsátök, ógn og ótta síðastliðin sex ár í landshlutanum.

Aylan Kurdi og bróðir hans Ghailb drukknuðu báðir við að reyna að komast yfir Eyjahafið. Myndin af Aylan látnum í fjöruborðinu fór eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Hér eru bræðurnir áður en fjölskyldan fór í hina hræðilegu sjóferð.

22. maí 2020 Á sama tíma og börn og fjölskyldur þeirra í austurhluta Úkraínu búa við ferðatakmarkanir vegna COVID-19 heimsfaraldursins hafa harðnandi átök kostað fjölda barna lífið. Aukin átök og heimsfaraldur hafa gert lífið enn óbærilegra fyrir þau 430 þúsund börn sem hafa mátt þola stríðsátök, ógn og ótta síðastliðin sex ár í landshlutanum.

Sex börn slösuðust á heimilum sínum fyrstu vikuna í maí eftir sprengjuárásir á þorpin þeirra. Í einu tilfella særðust þrjár ungar stúlkur alvarlegar, systur 7 og 10 ára og 7 ára vinkona þeirra.

„Ég kom heim og fann litlu stelpurnar mína og vinkonu þeirra inni á baði og þær voru þaktar blóði,“ segir Oleksanderi, faðir tveggja stúlkna í austurhluta Úkraínu. „Þær voru svo hræddar að þær flúðu bara inn á baðherbergi þar sem þær biðu eftir því að einhver myndi finna þær.“

Alls hafa tíu börn látið lífið vegna átaka frá upphafi árs í austurhluta Úkraínu segir í tilkynningu frá UNICEF.

Það hafa einnig verið gerðar níu árásir á skóla frá upphafi árs, fimm bara í apríl síðastliðnum. Í einni árásanna særðist sautján ára stúlkan þegar hún varð fyrir sprengjubroti á skólalóðinni. Allt þetta gerist þrátt fyrir að í nóvember 2019 hafi Úkraína orðið hundraðasta þjóðin til að lýsa yfir stuðningi við yfirlýsinguna um örugga skóla, (e. Safe Schools Declaration) og þannig skuldbinda sig til að verja menntun barna og ungmenna á tímum átaka.

„Það er svívirðilegt að börn og fjölskyldur í austurhluta Úkraínu þurfi ekki aðeins að búa við strangar aðgerðir og útgöngubann vegna COVID heldur líka á sama við stanslausan ótta við að heimili þeirra verði fyrir árás,“ segir Afshan Khan, yfirmaður UNICEF í Evrópu og Mið-Asíu, og bætir við.

„Eftir sex ár af blóðugum átökum þurfa börn og fjölskyldur í austurhluta Úkraínu á friði að halda. Strax. Við hvetjum stríðandi fylkingar til að gera vopnahlé.“

Í Úkraínu hefur verið útgöngubann, líkt og víða í Evrópu, síðan í lok mars. Rúmlega 19 þúsund staðfest tilfelli af COVID-19 hafa greinst í landinu. Skólaárið 2020 verður allt kennt í fjarkennslu en það þýðir að mörg barna sem búa á mesta átakasvæðinu munu ekki geta stundað nám. Netsamband er afar takmarkað á svæðinu sem og aðgengi að nauðsynlegum búnaði.

Víðs vegar í Úkraínu veitir UNICEF hundruð þúsunda barna, ungmenna og foreldra félags- og sálfræðiþjónustu og ýmiskonar fræðslu. UNICEF hjálpar til við að lagfæra skóla og leikskóla sem skemmst hafa í átökum og útvega vatn og hreinlætisvörur sem og hreinlætisaðstöðu. Í austurhluta Úkraínu hefur UNICEF starfað náið með menntamála- og vísindaráðuneyti landsins vegna COVID-19 til að tryggja fjarkennslu og nám barna og ungmenna meðan á útgöngubanni stendur. Í apríl síðastliðnum útvegaði UNICEF 19 sjúkrahúsum í austurhluta Úkraínu hjálpargögn af ýmsu tengd COVID-19.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn