Ljósahjúpur Hörpu mun skarta UNICEF-bláum lit um helgina til að sýna hluttekningu með þeim hörmungum sem börn í Nígeríu og nágrannaríkjunum standa nú frammi fyrir. Fjöldi vannærðra barna er í bráðri lífshættu og á hverjum einasta degi látast fleiri en 200 börn í norðurhluta Nígeríu, þar sem ástandið er verst.
UNICEF á Íslandi stendur nú fyrir neyðarsöfnun vegna þessa. Hægt er að styrkja hana hér eða með því að senda sms-ið BARN í nr 1900 (1.000 kr). Með réttri meðhöndlun í tæka tíð má koma í veg fyrir 99% dauðsfalla hjá vannærðum börnum á svæðinu.
„Neyðarsöfnunin hófst á mánudag og hefur gengið vonum framar. Mörg þúsund manns hafa styrkt hana nú þegar og það er yndislegt að finna þennan mikla stuðning. Verslanir og fyrirtæki hafa tekið okkur opnum örmum og til dæmis má finna veggspjöld átaksins í gluggum verslana niður nánast allan Laugaveg,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.


