19. nóvember 2004

Harry Belafonte opnar ljósmyndasýningu

Næstkomandi laugardag, þann 20. nóvember kl. 15:30, mun stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, opna ljósmyndasýningu um UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna – í Smáralindinni. Sýningin verður staðsett fyrir framan Te & kaffi (Debenhams) á neðri hæð Smáralindar.

Okkur yrði mikill heiður sýndur ef þú yrðir gestur okkar á opnun sýningarinnar.
Tilefni sýningarinnar er heimsforeldraátak UNICEF og hvetjum við þig til að mæta með vini og vandamenn.

Harry Belafonte hefur ferðast víðsvegar um heiminn, kynnt sér aðstæður barna og verkefni UNICEF. Hann er staddur hér á landi vegna 15 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Belafonte vill með heimsókn sinni hvetja Íslendinga til að taka þátt í heimsforeldraátakinu og veita þannig börnum heimsins betri framtíð.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn