16. mars 2005

Harry Belafonte sendir Íslendingum kveðjur

Stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, mun senda Íslendingum bréf sem fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn, 15. mars. Harry Belafonte kom til landsins á vegum UNICEF Ísland í nóvember síðastliðnum í þeim tilgangi að hvetja fólk til að gerast heimsforeldrar og láta sig málefni barna varða.

Stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, mun senda Íslendingum bréf sem fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn, 15. mars. Harry Belafonte kom til landsins á vegum UNICEF Ísland í nóvember síðastliðnum í þeim tilgangi að hvetja fólk til að gerast heimsforeldrar og láta sig málefni barna varða. Með bréfinu fylgir skrásetningareyðublað og umslag þar sem einstaklingum gefst kostur á að skrá sig sem heimsforeldrar.

Í bréfinu sem fylgir Morgunblaðinu segist hann hafa fundið fyrir því hve mikill kraftur og góðvild býr í Íslendingum og að þjóðin hafi mikið að gefa umheiminum. Hann segir: „Börnin eru ekki bara framtíðin, þau eru einnig nútíðin. Við verðum að hlúa að þeim og virkja þau til góðra verka. Með bréfi þessu langar mig að hvetja ykkur Íslendinga til að ganga í stóran hóp heimsforeldra sem lætur sig velferð barna um allan heim varða.“

Að lokum þakkar Harry Belafonte fyrir þær hlýju viðtökur sem honum voru veittar á hinu kalda og fallega Íslandi í nóvember á liðnu ári og sendir sínar bestu kveðjur til hins sannkallaða „Iceland in the Sun!“

UNICEF Ísland vill þakka Morgunblaðinu og Odda fyrir veittan stuðning.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn