20. ágúst 2007

Hátt í 3,5 milljónir króna söfnuðust í Latabæjarhlaupi

Um 4223 börn og foreldrar þeirra lögðu leið sína að Háskóla Íslands til að taka þátt í Latabæjarhlaupinu síðastliðinn Laugardag. Vel var staðið að hlaupinu og þóttist takast vel til í alla staði. Börnin voru þó mestu sigurvegararnir þar sem þau söfnuðu hátt í 3,5 milljónum króna til styrktar verkefna UNICEF um allan heim.

Söfnunarfénu verður varið til að hjálpa börnum sem líða skort vegna fátæktar, stríðs, heilsuleysis, menntunarskorts og náttúruhamfara. Fyrir hönd þessarra barna færum við öllum þátttakendum hlaupsins kærar þakkir!

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn