13. janúar 2014

Heimsforeldrar hjálpa börnum í Mið-Afríkulýðveldinu

Í kvöldfréttum RÚV síðastliðið fimmtudagskvöld voru sýndar sláandi svipmyndir frá blóðugum átökum í Mið-Afríkulýðveldinu. Börn hafa orðið fyrir skelfilegu ofbeldi og fjölda barna í landinu er í mikilli hættu. Á símafundi með öllum landsnefndum UNICEF kom fram að fjöldi þeirra barna sem er á flótta vegna átakanna eykst stöðugt.

Þetta eru grafalvarlegar fréttir. Stuðningur heimsforeldra nýtist í erfiðum aðstæðum sem þessum. Á einum mánuði hefur UNICEF náð að veita 140.000 börnum nauðsynlega hjálp. Við vorum til staðar áður en átökin brutust út, erum þar nú og verðum áfram.

Lífsnauðsynleg hjálp

Fyrir tveimur vikum hófst umfangsmikið bólusetningarátak til að verja yfir 200.000 börn gegn mislingum – lífshættulegum sjúkdómi sem menn gera nú allt til að koma í veg fyrir að verði að faraldri. Lyfjabirgðum fyrir 129.000 manns hefur enn fremur verið dreift til flóttafólks í höfuðborginni Bangui.

Auk þess má nefna að á einum mánuði hafa UNICEF og samstarfsaðilar skráð 182 fylgdarlaus börn. Nú hefur tekist að sameina 46 þeirra fjölskyldum sínum.

Ekkert af þessu væri mögulegt ef ekki kæmi til stuðningur frá heimsforeldrum og öðrum styrktaraðilum. Þeir gera okkur kleift að bregðast samstundis við og veita lífsnauðsynlega hjálp.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn