21. september 2016

Heimsmarkmiðaverðlaun Sameinuðu þjóðanna veitt í gær

Heimsmarkmiðaverðlaun Sameinuðu þjóðanna voru veitt í fyrsta skipti í gær, en verðlaunin hljóta þau sem þykja hafa skarað fram úr í baráttu fyrir réttindum kvenna og stúlkna. Í ár féllu þau í skaut ungrar stúlku sem bjargaði flóttafólki frá drukknun, lögfræðings sem hefur náð miklum árangri í baráttu gegn giftingu barna auk pakistanskra samtaka sem veita konum og stúlkum í sveitum nauðsynlega heilsugæslu.

Heimsmarkmiðaverðlaun Sameinuðu þjóðanna voru veitt í fyrsta skipti í gær, en verðlaunin hljóta þau sem þykja hafa skarað fram úr í baráttu fyrir réttindum kvenna og stúlkna. Verðlaunin eru samstarfsverkefni UNICEF, Project Everyone og Unilever.

Í ár féllu þau í skaut ungrar stúlku sem bjargaði flóttafólki frá drukknun, lögfræðings sem hefur náð miklum árangri í baráttu gegn giftingu barna auk pakistanskra samtaka sem veita konum og stúlkum í sveitum nauðsynlega heilsugæslu.

Yusra Mardini

Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum. Þau fyrstu voru ætluð stúlku eða ungri konu sem stuðlað hefur að bættu lífi stúlkna. Þau hlaut Yusra Mardini, 18 ára sýrlensk stúlka og keppandi á Ólympíuleikunum í sundi, fyrir að hafa bjargað flóttafólki sem var samferða henni yfir Eyjahafið frá drukknun. Yusra og systir hennar flúðu stríðið í Sýrlandi árið 2015 og búa nú í Þýskalandi. Flekinn sem þær ferðuðust á brotnaði í sundur á miðri leið yfir hafið. Með því að stökkva út í vatnið og leiða flekann í örugga höfn björguðu systurnar um 20 manns. Yusra var hluti af Ólympíuliði flóttamanna á Ólympíuleikunum í Ríó í ár og notaði tækifærið til að segja sína sögu og vekja með því athygli á erfiðleikum flóttamanna og farandfólks um allan heim.

Rebeca Gyumi

Önnur verðlaunin voru ætluð einstaklingi sem unnið hefur að samfélagslegum breytingum í þágu stúlkna. Þau hlaut Rebeca Gyumi fyrir baráttu sína gegn giftingum barna í Tansaníu. Rebeca er lögfræðingur, aktívisti og stofnandi og framkvæmdastjóri Msichana Initiative, hjálparsamtaka sem berjast fyrir réttindum stúlkna og aðgengi þeirra að menntun.

Dr. Sara Saeed

Þriðju verðlaunin falla í skaut samtaka sem bætt hafa líf stúlkna og kvenna. Í ár hlutu samtökin DoctHERS verðlaunin fyrir að veita stúlkum og konum heilsugæslu í sveitum Pakistan. Á myndinni sést dr. Sara Saeed taka við verðlaununum fyrir hönd samtakanna. Kvenkyns læknar í Pakistan hætta mjög oft að vinna eftir að hafa gengið í hjónaband. DoctHERS leiðir saman kvenkyns lækna og konur og stúlkur í sveitum sem þurfa á þjónustu að halda með hjálp internetsins. Þannig nýta samtökin fjarlækningar til að veita nauðsynlega heilsugæslu ásamt því að stuðla að aukinni atvinnuþátttöku pakistanskra kvenna.

Heimsmarkmiðaverðlaunin eru hluti af yfirstandandi átaki til að afla stuðnings við markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Markmiðin hafa verið samþykkt af öllum löndum heims, sem stefna að því í sameiningu að binda endi á fátækt, vernda plánetuna og tryggja hagsæld fyrir alla fyrir árið 2030.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn