Þær góðu fréttir berast nú frá UNICEF í Jemen að hjálpargögn eru komin til barna og fjölskyldna þeirra eftir linnulausar árásir stjórnarhersins á hafnarborgina Hodeida. Milljónir barna í Jemen reiða sig á hjálpargögn sem flutt eru inn í landið í gegnum borgina og varaði UNICEF við þeim hörmungum sem myndu fylgja ef þessi mikilvæga flutnignsleið yrði lokuð. Það var því mikill léttir þegar UNICEF tókst að koma yfir 50 tonnum af hjálpargögnum til Hodeida, meðal annars lyfjum, mat og hreinlætisvörum.
Milljónir barna eru í lífshættu
Eftir rúmlega þrjú ár af stríði eru innviðir landsins í rúst, aðgangur að hreinu vatni og næringu er takmarkaður og rafmagn af skornum skammti, Heilbrigðiskerfið er að hruni komið og verð á matvælum hefur margfaldast. Fjöldi opinberra starfsmanna hefur ekki fengið greidd laun í næstum tvö ár. Í ofanálag braust út skæður kólerufaraldur í landinu á síðasta ári en fleiri en milljón tilfelli hafa verið greind.
UNICEF er á vettvangi í Jemen og verður það áfram. Yfir 250 hjálparstarfsmenn sinna nú brýnum neyðaraðgerðum í Aden, Sanaa, Ibd, Hodeida og Saada. Með hjálp heimsforeldra og þeirra sem hafa stutt neyðaraðgerðir UNICEF í Jemen hefur okkur tekist á þessu ári að veita neyðaraðstoð við gífurlega erfiðar og hættulegar aðstæður, meðal annars að:
- Veita 9 milljón manns fjárhagslega aðstoð;
- Laga vatnskerfi sem tryggir 4,6 milljónum aðgengi að hreinu vatni;
- Meðhöndla 80.000 börn undir fimm ára aldri við alvarlegri vannæringu;
- Tryggja hálfri milljón barna heilbrigðisþjónustu.
Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Jemen er enn í fullum gangi. Hægt er að hjálpa með því að senda SMS-ið JEMEN í 1900 og gefa 1900 krónur.


