Hjálpargögnin sendir UNICEF á vettvang í kjölfar náttúruhamfara eða stríðs, en sum hjálpargögnin nýtast einnig í langtíma þróunaraðstoð.
Ljósmyndirnar segja sögur af börnum sem hafa notið góðs af hjálpargögnum og stuðningi UNICEF. Þannig sjá þeir sem kaupa jólakort og gjafir með eigin augum hvernig framlag þeirra getur hjálpað börnum í neyð.
Jólabúð UNICEF fer víða
Jólabúð UNICEF fer víða um helgina og verður sett upp útibú í Kringlunni laugardaginn 29. nóvember þar sem úrval jólakorta og gjafavara verður til sölu á góðu verði. Við verðum á svæðinu fyrir utan Vínbúðina á neðri hæð Kringlunnar frá kl. 11-18.
Laugardaginn 20. desember verður UNICEF einnig í jólaþorpi Hafnarfjarðarbæjar.
Jólabúð UNICEF að Laugavegi 42 er opin mánudaga til laugardaga, kl. 12-18, fram að jólum. Jólakort UNICEF eru einnig seld í verslunum Pennans Eymundsson um land allt, í The Pier og víðar.
Allur ágóði rennur til verkefna UNICEF víða um heim. Nú er rétti tíminn til að gefa gjöf sem heldur áfram að gefa!
Um jólakortasölu UNICEF
Sala á jólakortum var fyrsta fjáröflunin sem UNICEF stóð fyrir meðal einstaklinga og er enn traustur grunnur að starfi Barnahjálparinnar um allan heim. Jólakortin hafa verið seld í sjálfboðavinnu hér á landi í næstum hálfa öld.
Nánari upplýsingar á www.unicef.is/jolakort. Pantanir í síma 562 6262 eða á kort@unicef.is.
