Leiguflug á vegum UNICEF lenti í Líbanon í síðustu viku með nauðsynleg hjálpargögn, lyf og matvæli, fyrir börn innan Sýrlands. Í vélinni voru yfir 28 tonn af hjálpargögnum, þar á meðal 265.000 skammtar af MMR-bóluefni (gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum) og vítamínbættur ungbarna- og barnamatur.
„Þessi hjálpargögn eru sérstaklega mikilvæg til að ná til barna sem hafa misst af reglubundnum bólusetningum vegna stríðsástandsins. Að sama skapi mun vítamínbætti barnamaturinn hjálpa ungum börnum sem þurfa sárlega á næringu að halda,“ segir Youssouf Abdel-Jelil, talsmaður UNICEF í Sýrlandi.
Veturinn er í nánd
Endir á átökunum er ekki í sjónmáli og aðstæður barna verður sífellt erfiðari. Starfsfólk á vegum UNICEF sem hefur ferðast á milli sjúkrahúsa í borgum Sýrlands greinir frá fjölda barna sem komið er með til aðhlynningar á sjúkrahúsin vegna bráðavannæringar. Álagið sem fylgir stríðsástandi og áhrif hækkandi matvælaverðs auk matvælaskorts á sumum svæðum hefur nú þegar stefnt lífi ótal barna í hættu. Komandi vetur mun gera ástandið enn alvarlegra.
Þú getur hjálpað!
UNICEF leggur kapp á að koma vítamínbættum mat til yfir 50.000 barna á næstu þremur mánuðum á þeim svæðum í Sýrlandi þar sem hvað hörðust átök hafa geisað.
Framlög í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn frá Sýrlandi fara meðal annars í verkefni eins og þessi. Við höldum söfnuninni áfram. Hægt er að leggja sitt af mörkum með því að senda sms-ið unicef í númerið 1900 og styrkja þannig um 1500 krónur. Kærar þakkir fyrir stuðninginn.
