07. mars 2016

Hlýja kveikir bros í vetrarhörkum Sýrlands

Veturinn í Sýrlandi hefur sýnt þeim tæplega þremur milljónum barna sem eru á flótta í landinu litla vægð.

Febrúar var kaldur og miskunnarlaus í sýrlensku borginni Aleppo. Veturinn í Sýrlandi hefur sýnt þeim tæplega þremur milljónum barna sem eru á flótta í landinu litla vægð. Mörg þeirra búa við hörmulegar aðstæður. Hin fjögurra ára gamla Esraa og þriggja ára bróðir hennar Waleed reyna að finna sér sólríkan blett fyrir utan flóttaskýlið þar sem þau búa til að sleppa við yfirþyrmandi kuldann innan dyra.

„Mín eina ósk fyrir nýja árið er að bróðir minn hætti að veikjast,“ hvíslar Esraa. Börn sem búa í opnu og óupphituðu húsnæði eru berskjölduð gagnvart miklum kulda og eru því í mikilli hættu á að fá öndunarfærasýkingar sem síðan geta þróast yfir í alvarlega lungnabólgu.

Þrátt fyrir að foreldrar reyni sitt besta til að hlífa börnum sínum við mestu vetrarhörkunum hefur ófriður síðustu fimm ára lamað fjárhag fjölskyldna. Þær hafa nú ekki efni á nauðsynjum á borð við hlý föt.

Esraa og Waleed eru tvö af næstum 600.000 börnum innanlands í Sýrlandi sem fengið hafa sérstaka vetrarhjálp frá UNICEF. Sú hjálp felur í sér að sjá börnum fyrir vetrarfatnaði, framleiddum á svæðinu til að veita fólki vinnu og styðja við hinn viðkvæma efnahag þar, um leið og það sparar flutningskostnað. Auk þess fá meðal annars 300.000 börn hlý teppi og um 100.000 börnum gefst kostur á að læra í upphituðum skólastofum. Enn meira magni af vetrarfatnaði er síðan dreift í nágrannaríkjum Sýrlands.

„Þetta er besti dagur lífs míns!“ sönglar Esraa í nýju vetrarfötunum sínum. ,,Í þessum hlýju fötum verður Waleed örugglega ekki veikur aftur.“

Á bleikum náttfötum

Hin fimm ára gamla Taghreed er þögul og svarar fáu um sína hagi. Móðirin greinir frá því að maður hennar hafi látist fyrir ári síðan þegar sprengja skall á húsi fjölskyldunnar. Hún hafi þá gripið börnin sín og flúið, með ekkert meðferðis annað en fötin sem þau voru klædd í. Taghreed er yngst barnanna og var mikil pabbastelpa.

Einkar þröngt er í búi í hinu nýja lífi fjölskyldunnar og ný föt eru munaður sem móðirin getur ekki boðið börnunum sínum. Þegar starfsfólk UNICEF hittir fyrir fjölskyldu Taghreed ljómar litla stúlkan er henni er afhentur ,,töfrakassinn“ eins og hún kallar hann. ,,Ég bjóst ekki við að þetta myndi gerast fyrir mig,“ skríkir hún eftir að hafa mátað nýju vetrarfötin.

Í „töfrakassa“ UNICEF er að finna jakka, ullarnærföt, peysur, buxur, sokka, skó, trefla og ullarhúfur.

Mikilvæg hjálp í neyð

Hin áframhaldandi stríðsátök í Sýrlandi hafa hrakið yfir sex og hálfa milljón Sýrlendinga á flótta innan heimalands síns. Vetrarkuldinn eykur enn frekar á neyð flóttafjölskyldna. Með því að mæta brýnustu vetrarþörfunum vinnur UNICEF að því að aðstoða varnarlaus börn í gegnum þessa sérlega erfiðu mánuði og auðvelda aðgang þeirra að grunnþjónustu á sviði heilsugæslu og menntunnar.

Heimsforeldrar hafa tekið virkan þátt í baráttu UNICEF, sem og þeir sem gefið hafa í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn frá Sýrlandi. Enn er hægt að leggja henni lið.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn