02. september 2010

Hönnuðir styrktu UNICEF á LungA-hátíðinni

Sett var á fót milliliðalaus verslun, eða svokölluð PopUp verslun, á LungA á Seyðisfirði í júlí síðastliðnum og gáfu hönnuðir 10% af söluverði valdra vara til styrktar UNICEF. UNICEF kann hönnuðunum bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Sett var á fót milliliðalaus verzlun, eða svokölluð PopUp verzlun, á LungA á Seyðisfirði í júlí síðastliðnum og gáfu hönnuðir 10% af söluverði valdra vara til styrktar UNICEF. PopUp verzlunin á Seyðisfirði var unnin í samstarfi við Worn by Worship. 

PopUp Verzlun tjaldaði á Seyðisfirði yfir LungA hátíðina, laugardaginn 17. júlí síðastliðinn. PopUp kom sér fyrir í tjaldi við hliðina á útitónleikasvæði þar sem gestir og gangandi gátu kíkt við og verslað sér fallega íslenska hönnun og styrkt starf Barnahjálparinnar í leiðinni.

"PopUp" er milliliðalaus verzlun þar sem neytandinn getur verslað beint af hönnuði. PopUp verzlun gefur hönnuðum tækifæri á að kynna og selja vörur sínar án álagningar milliða.

UNICEF á Íslandi kann hönnuðunum sem gáfu til verkefna Barnahjálparinnar bestu þakkir fyrir stuðninginn en hönnuðirnir voru:
Pardus/Ása Ninna Pétursdóttir, Elva&Eccentric Romantic / Elva Dögg Árnadóttir, A.C.Bullion / Aaron Bullion, Eight Of Hearts / Þórey Björk Halldórsdóttir og SHE / Silja Hrund Einarsdóttir.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn