09. mars 2020

100 vörubílar fullir af hjálpargögnum frá UNICEF farið til norðvesturhluta Sýrlands á árinu

Það sem af er þessu ári hafa hundrað stórir vöruflutningabílar fullir af hjálpargögnum frá UNICEF verið sendir til Sýrlands. Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, lauk um helgina tveggja daga heimsókn sinni til Gaziantep í Tyrklandi

9. mars 2020 Það sem af er þessu ári hafa hundrað stórir vöruflutningabílar fullir af hjálpargögnum frá UNICEF verið sendir til Sýrlands. Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, lauk um helgina tveggja daga heimsókn sinni til Gaziantep í Tyrklandi þar sem hún heimsótti mannúðarstöðvar í Bab Al Hawa við landamæri Sýrlands. Þar fylgist hún persónulega með nokkrum slíkum vörubílum halda af stað til Sýrlands.

Fore fór einnig um sýrlenskar flóttamannabúðir í Kahramanmaras en í síðustu viku var hún í Sýrlandi ásamt framkvæmdastjóra Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Eins og fjallað hefur verið um er ástandið skelfilegt í norðvesturhluta Sýrlands núna og harður vetur og versnandi veður gert ástand barna og fjölskyldna erfiðara en ella. 600 þúsund börn hafa á síðustu þremur mánuðum neyðst til að flýja heimili sín.

Við landamærin hjá Bab Al Hawa fylgdist Fore með þegar verið var að ferma vöruflutningabíla með hlýjum vetrarfatnaði, teppum, hreinlætisvörum, vatnsílátum og næringarfæði svo fátt eitt sé nefnt. Hjálpargögnin voru á leið til Norðvestur-Sýrlands en þangað hefur UNICEF sent hundrað drekkhlaðna bíla það sem af er ári, eða sem nemur rúmlega einum á dag.

UNICEF á Íslandi hefur verið með viðvarandi neyðarsöfnun fyrir börn í Sýrlandi og hafa viðtökur Íslendinga við neyðinni nú í vetur verið afar góðar og Íslendingar klárlega átt mikið í þessum sendingum inn í Sýrland það sem af er ári. En það má aldrei slá slöku við.

„Að senda neyðargögn yfir landamærin til Sýrlands er líflína ótalmargra fjölskyldna í erfiðri stöðu,“ segir Fore. „Níu ár eru síðan stríðið hófst og fimm milljónir barna þurfa á neyðaraðstoð að halda í landinu. Við erum óendanlega þakklát samstarfsaðilum okkar á vettvangi fyrir hetjulegt starf þeirra sem oft hefur tekið sinn toll á lífi þeirra og fjölskyldu þeirra.“

Í Kahramanmaras-búðunum hitti Fore fyrir fjölskyldu sem búið hafði í Tyrklandi í átta ár. Börnin voru á aldrinum 7-12 ára, gengu þar í skóla og faðirinn vinnur byggingarvinnu. Þrátt fyrir að finna fyrir öryggi og vera búin að skjóta þar rótum dreymir þau þó enn um að komast aftur heim.

Í búðunum búa nú 11 þúsund manns, helmingurinn börn og þar fá 3.700 börn aðgang að námi og ungt fólk aðgang að námskeiðum.

„Tyrkland hefur sýnt mikið örlæti og hýst milljónir sýrlenskra barna síðan stríðið hófst. Það er afar brýnt að þessi stuðningur haldi áfram,“ segir Fore eftir heimsóknina. Kallað hefur verið eftir því undanfarið að fleiri axli ábyrgð á flóttamannastraumnum frá Sýrlandi sem að stórum hluta hefur lent á Tyrkjum og Grikkjum.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn