UNICEF var í Sýrlandi fyrir stríðið, er þar núna og verður þar áfram. Neyðaraðgerðir UNICEF í Sýrlandi og nágrannaríkjunum eru þær stærstu sem samtökin hafa nokkru sinni haldið úti. Frá upphafi stríðsins árið 2011 hefur UNICEF hjálpað milljónum og aftur milljónum barna.
Hvað gerum við?
... við veitum börnum meðferð við vannæringu.
... við komum börnum aftur í skóla og dreifum námsgögnum.
... við bólusetjum börn gegn mislingum og öðrum lífshættulegum sjúkdómum til að koma í veg fyrir að faraldur brjótist út.
... við veitum fólki hreint vatn. UNICEF sér um 300 þúsund manns fyrir hreinu vatni í Aleppo á hverjum einasta degi.
... við veitum börnum sálrænan stuðning og setjum upp barnvæn svæði.
... við útvegum fjölskyldum heilsugæslu og erum einn stærsti veitandi sjúkragagna og annarra nauðsynja fyrir sjúkrahús í Aleppo.
... við sinnum afar umfangsmikilli barnavernd og leggjum áherslu á að sameina fjölskyldur.
... við veitum börnum hjálp bæði í flóttamannabúðum og úti í samfélögum.
... við komum hjálpargögnum á þá staði þar sem þörfin er mest, þar á meðal á svæði sem haldið er í herkví.
Heimsforeldrar gegna lykilhlutverki í neyðaraðgerðum UNICEF í Sýrlandi. Með þeirra aðstoð veitum við milljónum sýrlenskra barna lífsnauðsynlega aðstoð. Viltu vera með í baráttunni? Skráðu þig sem heimsforeldri núna!


