Börn búa á götunni vegna ólíkra ástæðna. Sum hafa flúið heimili sín vegna ofbeldis, sum eiga ekki fjölskyldu og önnur hafa einfaldlega týnt foreldrum sínum í mannmörgum borgum.
Að búa á götunni er ákaflega hættulegt, sérstaklega fyrir börn sem hafa litlar varnir. Börn sem búa á götunni verða fyrir margs konar ofbeldi; það er ráðist á þau, þau verða fyrir kynferðislegu ofbeldi, þeim er rænt og þau eru seld mansali. Öll tapa þau bernskunni og þurfa eins síns liðs að reyna að lifa af í hættulegum aðstæðum.
UNICEF leggur áherslu á heildræna nálgun og vinnur með yfirvöldum, einkageiranum, frjálsum félagasamtökum og öðrum aðilum að því að kortleggja, meta og bæta barnavernd á öllum sviðum samfélagsins.
- Við berum kennsl á börn sem eru ein á ferð og sameinum þau fjölskyldum sínum eða finnum fyrir þau varanlegt heimili.
- Við útbúum barnvæn svæði þar sem börn geta leikið sér, lært og fengið sálrænan stuðning í öruggu umhverfi.
- Við fylgjumst með, greinum frá og bregðumst við alvarlegum mannréttindabrotum gegn börnum.
- Við vinnum hörðum höndum að því að fyrirbyggja að börn lendi á götunni og að koma í veg fyrir ofbeldi gegn þeim.
Heimsforeldrar taka þátt í því að skapa öryggi fyrir börn sem búa í hættulegum aðstæðum. Viltu vera með í baráttunni? Skráðu þig sem heimsforeldri núna!

