Fjársöfnun fyrir börn sem búa við neyð erlendis er enn langstærsti hluti starfs UNICEF á Íslandi, en á undanförnum árum hefur áherslan á íslensk börn aukist.
UNICEF var meðal þeirra aðila sem þrýstu á um að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna yrði lögfestur á Íslandi og nú vinnum við að því að hann sé virtur. Hvernig gerum við það?
- Við bjóðum skólum að gerast réttindaskólar. Réttindaskólar leggja Barnasáttmálann til grundvallar og innleiða hann í öllu sínu starfi. Markmiðið er að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins.
- Við bjóðum sveitarfélögum að verða barnvæn sveitarfélög. Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og hafa þau að leiðarljósi í öllum sínum störfum. Sett eru upp eins konar „barnaréttindagleraugu“ og ákvarðanir skoðaðar með hliðsjón af sáttmálanum. Akureyri er fyrsta barnvæna sveitarfélagið á Íslandi og er það von okkar að fleiri feti í fótspor þeirra.
- Við gefum út skýrslur með upplýsingum um stöðu barna á Íslandi. Við höfum til dæmis gert skýrslu um börn sem líða efnislegan skort, börn sem eru beitt ofbeldi og börn með geðrænan vanda.
Sem heimsforeldri hjálpar þú okkur að gæta réttinda barna bæði á Íslandi og um víða veröld.
Með þinni hjálp vinnum við að því að gæta réttinda allra barna. Viltu vera með? Skráðu þig hér!

