Hungur er alvarlegt neyðarástand þar sem lítið sem ekkert mataröryggi er til staðar og börn og fullorðnir líða gríðarlegan skort. Þá er oft lýst yfir neyðarástandi, en það þýðir að fólk er þegar farið að svelta til dauða og að minnsta kosti 15% barna eru bráðavannærð.
Einungis er talað er um hungursneyð (famine) þegar ástandið er orðið skelfilega slæmt. Til að lýst sé formlega yfir hungursneyð þarf þrennt til; 30% barna þjást af bráðavannæringu, 20% íbúa fá innan við 2.100 hitaeiningar á dag og tveir fullorðnir, eða fjögur börn á hverja 10.000 íbúa deyja á dag vegna matarskorts.
- Við erum á vettvangi með umfangsmiklar neyðaraðgerðir á þeim svæðum þar sem hungursneyð hefur orðið eða legið við; til dæmis vinnum við núna þrotlaust að því að koma í veg fyrir hungursneyð í Jemen, Nígeríu og Sómalíu.
- Við meðhöndlum börn við vannæringu og reynum að koma í veg fyrir að fleiri verði vannærð með því að útvega mikið magn af hjálpargögnum, svo sem jarðhnetumauk og aðra vítamínbætta fæðu.
- Við bólusetjum börn og útvegum hreint drykkjarvatn til að koma í veg fyrir að börn veikist af sjúkdómum, því vannæring veikir ónæmiskerfið og gerir börn berskjölduð gegn veikindum sem þau myndu undir venjulegum kringumstæðum ráða við.
- Við leggjum áherslu á heildrænar aðgerðir og bregðumst því ekki einungis við neyðarástandi; við fyrirbyggjum vannæringu með því að veita foreldrum fræðslu, sinna nýsköpun til að leita nýrra úrræða við vannæringu, veita ráðgjöf til mæðra um brjóstagjöf og margt fleira.
Heimsforeldrar gegna lykilhlutverki við neyðaraðgerðir UNICEF. Það er meðal annars vegna heimsforeldra sem UNICEF getur brugðist hratt og örugglega við og útvegað mikið magn af lífsnauðsynlegum hjálpargögnum. Viltu vera með í baráttunni? Skráðu þig sem heimsforeldri núna!

