11. maí 2015

Hvernig virka barnvæn svæði?

Barnvæn svæði eru aðferð hjálparsamtaka til að skapa öryggi fyrir börn í erfiðum aðstæðum

Barnvæn svæði eru aðferð hjálparsamtaka til að skapa öryggi fyrir börn í erfiðum aðstæðum, svo sem börn í neyðaraðstæðum, börn sem búa á götunni eða börn sem vinna þrælkunarvinnu.

Á barnvæn svæði geta börn leitað til að leika sér og njóta þess að vera börn, til þess að fá kennslu og vinna upp það sem þau hafa misst úr skóla, til þess að fá nauðsynlega heilsugæslu og njóta sálfræðilegrar aðstoðar.

Barnvænum svæðum er ætlað að vera tímabundið úrræði, en langtíma markmiðið er að koma börnunum aftur í skóla, sameina þau fjölskyldum sínum eða finna þeim varanlegt fóstur.

Heimsforeldrar taka þátt í því að skapa öryggi fyrir börn í erfiðum aðstæðum um allan heim. Hvort sem það er jarðskjálfti í Nepal, umsátur í Aleppo eða börn á götunni í Bangladesh - UNICEF er til staðar fyrir börnin. Viltu vera með í baráttunni? Skráðu þig sem heimsforeldri núna!

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn