11. maí 2015

Hvernig virkar vítamínbætt jarðhnetumauk gegn vannæringu?

Vannærð börn eru í lífshættu og þurfa strax meðhöndlun.

Vannæring er ein af stærstu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Vannæring hefur bein áhrif á einn af hverjum þremur einstaklingum í heiminum í dag. Börn sem eru vannærð ná ekki að vaxa og dafna eðlilega og eru líklegri til að veikjast af sjúkdómum. Þau eru í lífshættu og þurfa strax meðhöndlun. Sem betur fer eru til einfaldar lausnir við alvarlegri vannæringu.

Vítamínbætt jarðhnetumauk getur til dæmis gert algjör kraftaverk! Í maukinu eru öll nauðsynleg næringarefni, vítamín og steinefni. Það góða við maukið er að það er tilbúið til neyslu beint úr pakkanum -það þarf til dæmis ekki að blanda það við vatn, sem minnkar smithættu mjög mikið. Oftast þurfa börn einungis 3 pakka á dag í nokkrar vikur til að ná bata. Yfir 95% barna sem fá meðferð við vannæringu ná sér að fullu.

Heimsforeldrar taka þátt í því að berjast gegn vannæringu og hjálpa börnum sem eru alvarlega vannærð að ná bata. Í dag eru næstum helmingi færri börn sem þjást af vannæringu en gerðu árið 1990. Það er sannarlega árangur sem drífur okkur áfram. Viltu vera með í baráttunni? Skráðu þig sem heimsforeldri núna!

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn