22. janúar 2016

IKEA á Íslandi afhendir 200 mjúkdýr og styrkir menntaverkefni UNICEF

Börnin á Barnaspítala Hringsins fengu afhent 200 mjúkdýr frá verslun IKEA á Íslandi í dag. Söfnunarátakið Mjúkdýraleiðangurinn er hluti af alþjóðlegu verkefni IKEA sem hefur staðið í samtals 13 ár. Af hverju mjúkdýri sem viðskiptavinir kaupa fyrir jólin rennur ein evra til menntaverkefna á vegum UNICEF og Barnaheilla (Save the Children).

Börnin á Barnaspítala Hringsins fengu afhent 200 mjúkdýr frá verslun IKEA á Íslandi í dag. Söfnunarátakið Mjúkdýraleiðangurinn er hluti af alþjóðlegu verkefni IKEA sem hefur staðið í samtals 13 ár. Af hverju mjúkdýri sem viðskiptavinir kaupa fyrir jólin rennur ein evra til menntaverkefna á vegum UNICEF og Barnaheilla (Save the Children). Á heimsvísu hefur verkefnið stuðlað að betra lífi fyrir rúmlega tólf milljónir barna.

Frá upphafi mjúkdýraleiðangursins árið 2003 hafa safnast sem hvorki meira né minna en 88 milljónir evra sem farið hafa til 95 mismunandi verkefna í 45 löndum í þremur heimsálfum. Þessir fjármunir nýtast m.a. til þjálfa kennara, kaupa kennslugögn og búa börnum öruggara umhverfi, bæði í skólanum og í samfélaginu almennt. Allir þessir þættir hjálpa börnum að halda heilsu, sækja skóla og ná árangri.

Í verslun IKEA á Íslandi söfnuðust 10.611 evrur, eða 1.506.444 íslenskar krónur. Eins og undanfarin ár bauðst viðskiptavinum einnig að gefa tvisvar með því að láta mjúkdýr í söfnunarkassa. Mjúkdýrin 200 sem afhent voru í dag eru ekki bara leikföng inni á leikstofu sjúkrahússins því þau aðstoða einnig við kennsluna í skólastarfi barnanna. Þar má finna margar persónur úr þekktum ævintýrum sem læra m.a. stærðfræði og landafræði með börnunum.

Mikilvægi menntunar

Um 69 milljónir barna í heiminum verða í dag af þeim grundvallarréttindum að ganga í skóla, ýmist vegna fátæktar, fötlunar, átaka eða misréttis. Öll menntun er nauðsynleg fyrir þroska barna og framtíðarmöguleika þeirra. Þá er menntun einnig mikilvæg til að rjúfa vítahring fátæktar.

Nánar má kynna sér mjúkdýraleiðangurinn á heimasíðu IKEA á Íslandi.​

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn