Tekið er eftir því hjá starfsmönnum UNICEF á vettvangi hve vel Íslendingar hafa brugðist við neyðarákallinu vegna ástandsins í Austur-Afríku. Starfsfólk UNICEF í Dadaab í Keníu vill koma á framfæri innilegum þökkum fyrir stuðninginn.
Þegar hafa yfir 10.000 manns lagt landssöfnun UNICEF á Íslandi lið og nú bætist fjöldi hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu og stuðningsmanna þeirra í hópinn. Fyrir þetta er starfsfólk UNICEF á vettvangi afar þakklátt.
Auk þess að gefa í gegnum hlaupið er hægt að styrkja söfnunina með því að hringja í söfnunarsímanúmerin:
908-1000 (1.000 krónur)
908-3000 (3.000 krónur)
908-5000 (5.000 krónur)
Einnig er hægt að styrkja neyðarstarfið með því að leggja inn á neyðarreikning UNICEF: 515-26-102040 (kt. 481203-2950).
Takk Íslendingar!
Öll framlög sem safnast í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir UNICEF á Íslandi fara til neyðaraðgerða UNICEF á þurrkasvæðinu. Þörfin er mikil og eykst enn.
UNICEF veitir mikla og samhæfða aðstoð á svæðinu öllu sem nú er í vanda vegna mestu þurrka í sex áratugi. Það sem af er þessari viku hafa samtökin sem dæmi komið nægum hjálpargögnum til Mogadishu og suðurhluta Sómalíu til að meðhöndla 4.300 lífshættulega vannærð börn.
Aldrei hafa fleiri hlaupið til styrktar UNICEF á Íslandi en hafa nú skráð sig fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Skráning í áheitahlaupið stendur enn yfir og þegar hafa nærri sex sinnum fleiri skráð sig fyrir UNICEF en í fyrra.
Samtals munu þeir hlaupa 1.323 kílómetra – sem er nálægt því að þeir fari hringinn í kringum landið!
