08. júlí 2008

Íslendingar gáfu 3 milljónir til hjálparstarfs

Hvirfilbylurinn Nargis reið yfir suðausturhluta Mjanmar 3. apríl síðastliðinnmeð þeim skelfilegu afleiðingum að rúmlega 84 þúsund manns létu lífið og 54 þúsunda er enn saknað.

Nú tveimur mánuðum síðar, þegar kastljós fjölmiðla hefur að mestu leyti beinst frá landinu, vinnur starfsfólk Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF)enn hörðum höndum að því að koma börnum á svæðinu til hjálpar. Samtökin vinna meðal annars áfram að því að koma lífsnauðsynlegum lyfjum og öðrum sjúkragögnum til nauðstaddra. Áfram verður kapp lagt á að tryggja börnum aðgang að heilnæmu drykkjarvatni og viðunandi salernisaðstöðu. Mikil áhersla er á að koma skólastarfi af stað á nýjan leik og lífi barna aftur í sem eðlilegastar skorður. Loks er mikið verk framundan á sviði barnaverndar, og þá sérstaklega að koma börnum sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar til hjálpar.



„Nargis hefur sett alvarlegt mark sitt á líf ótalmargra barna í Mjanmar, öryggi þeirra og velferð. UNICEF vinnur að því að mæta þörfum þessara barna og tryggja að þau haldi áfram að fá þá hjálp sem þau þurfa,“ sagði yfirmaður UNICEF í Mjanmar, Ramesh Shrestha. „Þau mega ekki gleymast.”



Íslendingar gefa þrjár milljónir til neyðaraðstoðar UNICEF í Mjanmar
Formlegri fjársöfnun á Íslandi vegna hjálparstarfs UNICEF í Mjanmar er nú lokið. Alls söfnuðust rúmar þrjár milljónir króna og vilja samtökin koma á framfæri þakklæti til þess mikla fjölda Íslendinga sem lagði söfnuninni lið. Þessir fjármunir munu nýtast í hjálparstarfi UNICEF á svæðinu á komandi misserum.



„Það er hughreystandi að sjá hve Íslendingar bregðast skjótt og vel við ákalli um hjálp til barna í neyð. Framlög almennings hérlendis sem erlendis skipta sköpum fyrir líf hundruð þúsunda barna í hópi fórnarlamba hamfaranna í Mjanamar,“ sagði Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.



Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn