15. júní 2018
Eftirvænting þjóðarinnar fyrir heimsmeistaramótinu í knattspyrnu er nú í hámarki, enda styttist í fyrsta leik íslenska liðsins. Spenningurinn er ekki síst mikill hjá UNICEF á Íslandi því fyrirtæki landsins hafa tekið sig saman og heitið á íslenska liðið í þágu barna um allan heim.
Lyfjafyrirtækið Alvogen tilkynnti á mánudaginn að það myndi heita einni milljón króna á hvert íslenskt mark til styrktar UNICEF og skoraði á önnur fyrirtæki að gera slíkt hið sama. Íslensk fyrirtæki svöruðu kallinu en auk milljón króna frá Alvogen hefur Norðurál og Deloitte á Íslandi heitið 500 þúsund krónum á mörk íslenska liðsins og Alvotech, Eimskip og Vörður tryggingar 250 þúsund krónum. Samtals mun hvert íslenskt mark því skila 2.750.000 krónum til starfs UNICEF.
UNICEF nýtir áheitin til að útvega leikjakassa (e. Recreational kits) sem innihalda fótbolta, ýmis leikföng, skólatöskur og námsgögn. Þeir eru notaðir á barnvænum svæðum í flóttamannabúðum og á hamfarasvæðum víða um heim, til dæmis fyrir börn á flótta frá Sýrlandi og Jemen. Fyrir hvert mark er hægt að útvega 137 leikjakassa, sem nýtast munu þúsundum barna.
Enn geta fyrirtæki slegist í hópinn og tekið þátt í gleðinni. Ef almenningur vill vera með er meðal annars hægt að kaupa HM-pakkann á sannargjafir.is en hann inniheldur fjóra fótbolta sem sendir eru á barnvæn svæði, þar sem börn geta leikið sér og spilað fótbolta í öruggu umhverfi.
UNICEF á Íslandi bíður í ofvæni eftir fyrsta leik íslenska liðsins á laugardaginn og óskar strákunum góðs gengis. Við hvetjum auðvitað framherja liðsins sérstaklega til að reima á sig markaskóna.
Áfram Ísland!


