21. nóvember 2006

Íslensk fyrirtæki styrkja dreifingu malaríu-flugnaneta í Gíneu-Bissá

Í síðustu viku hófst átak UNICEF í Gíneu-Bissá um að koma í veg fyrir malaríusmit. Í átakinu verður 180 þúsund malaríu-flugnanetum dreift til barna og mæðra þeirra, börn fá A-vítamín og lyf við ormum í maga. Áætlað er að flugnanetin komi til með að bjarga 4000 börnum á ári sem annars myndu deyja af völdum malaríu.

Um er að ræða mjög stórt átak og styrkja íslensk fyrirtæki og einstaklingar 80% verkefnisins. Féð sem safnaðist vegna uppboð á hátíðarkvöldverði sem Baugur Group, FL Group og Fons héldu til styrktar UNICEF er nú varið til þessa verkefnis. Stefán Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, fylgdist með þegar átakið hófst í Gíneu-Bissá.

„Í dag hófst í tveimur héruðum í norðaustur hluta landsins dreifing á flugnanetum sem hengd eru yfir rúma og verja börn og barnshafandi konur geng malaríu smitum. Það var mjög sterk upplifun að varða vitni af þessu átaki en í nóvember koma netin til með að ná til alls landsins. Samhliða dreifingunni á netunum fá börnin a-vítamín dropa og lyf geng ormum og öðrum sníklum. Við sáum dreifingu á nokkrum stöðum en reiknað er með að þetta taki rúma viku á hverjum stað fyrir sig og viðbúið að viðtökur verið mjög góðar enda náðist 95% þátttaka í bólusetningarátaki UNICEF gegn mislingum í maí síðastliðnum,“ sagði Stefán þegar átakið var kynnt í Gíneu-Bissá.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn