18. maí 2018

Íslenskir skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöð innleiða Barnasáttmálann

Hátíðlegt var í Laugalækjarskóla í morgun þegar skólinn varð formlega Réttindaskóli UNICEF á Íslandi. Það voru fulltrúar í réttindaráði Laugalækjarskóla sem tóku við Réttindaskólaviðurkenningunni í Laugalækjarskóla í morgun. Að auki hlutu frístundaheimilið Dalheimar og félagsmiðstöðin Laugó viðurkenningu sem Réttindafrístund.

Hátíðlegt var í Laugalækjarskóla í morgun þegar skólinn varð formlega Réttindaskóli UNICEF á Íslandi. Það voru fulltrúar í réttindaráði Laugalækjarskóla sem tóku við Réttindaskólaviðurkenningunni í Laugalækjarskóla í morgun. Að auki hlutu frístundaheimilið Dalheimar og félagsmiðstöðin Laugó viðurkenningu sem Réttindafrístund.

„Við erum bæði stolt af og þakklát fyrir samstarfið við þessar stofnanir við að innleiða hugmyndafræði Réttindaskóla UNICEF og þar með Barnasáttmálann. Það hafa allir verið ákaflega áhugasamir við að leita leiða til þess að auka þekkingu sína á réttindinum barna og setja þau í samhengi við starfsumhverfið sitt,“ segir Nílsína L. Einarsdóttir, sem leitt hefur Réttindaskólaverkefnið fyrir hönd UNICEF.

Börn þekkja réttindi sín betur

Viðhorfskannanir meðal barna og fullorðinna í Réttindaskólunum sýna þá þróun sem hefur orðið frá upphafi verkefnisins fyrir ári síðan. Niðurstöðurnar benda til afar jákvæðra áhrifa á þekkingu skólasamfélagsins á mannréttindum barna. Börnin þekkja réttindi sín betur og vita að þau verða ekki tekin frá þeim, jafnvel þótt þau geri eitthvað af sér. Þá eru fleiri börn sem segja fullorðna fólkið spyrja þau álits um hvernig hægt sé að gera skólann, frístundaheimilið og félagsmiðstöðina þeirra betri.

„Börnin eru búin að læra um réttindi sín í skólanum, frístundaheimilinu og innan veggja félagsmiðstöðvarinnar. Þau eru því sjálf farin að þekkja leiðir til þess að setja réttindi sín í samhengi við daglegt líf. Í skólanum, frístundaheimilinu og í félagsmiðstöðinni fá þau enn fleiri tækifæri til þess að láta skoðanir sínar í ljós og upplifa að mark sé tekið á þeim,“ segir Nílsína og leggur áherslu á að börn sem þekki réttindi sín verði færari í að láta vita ef brotið er á réttindum þeirra.

“Nú er ég búinn að taka þátt í þessu verkefni í dágóðan tíma. Ég hef lært mjög mikið um hvernig Barnasáttmálinn hefur, getur og mun móta starfið okkar. Ekki nóg með það þá hef ég fengið mun betri innsýn í skólastarfið og hvernig sáttmálinn tengist því. Í gegnum fundi með réttindaráði og regluleg samskipti við umsjónarmenn. Það liggur enginn vafi á því að innleiðingin stuðlar að auknu samstarfi skóla- og frístundastarfs,“ segir Pétur Hjörvar Þorkelsson, aðstoðarforstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Laugó.

Hvernig fær skóli viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF?

Skólarnir þurfa að uppfylla fimm forsendur Réttindaskóla UNICEF, sem byggja á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Sjá meira um forsendurnar hér: https://unicef.is/rettindaskoli

  1. Þekking á réttindum barna - 42. grein Barnasáttmálans.
  2. Barna- og ungmennalýðræði – 12. grein Barnasáttmálans.
  3. Eldmóður fyrir réttindum barna – 2., 4., 12. og 29. greinar Barnasáttmálans
  4. Forsendur Barnasáttmálans hluti af daglegu starfi – 2., 4., 12. og 29. greinar Barnasáttmálans
  5. Samstarf – 2., 3. og 6. grein Barnasáttmálans.

UNICEF á Íslandi heldur utan um innleiðingu Réttindaskólans og opið er fyrir umsóknir frá nýjum skólum sem vilja taka þátt á heimasíðu UNICEF á Íslandi hér. Rannsóknir á áhrifum Réttindaskóla erlendis hafa sýnt fram á jákvæðar breytingar á skólabrag, börn urðu betri í að standa vörð um eigin réttindi og vellíðan þeirra jókst.

Réttindaskólum UNICEF mun fjölga

Á viðburðinum skrifuðu Helgi Grímsson, sviðsstjóri Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, og Bergsteinn Jónsson, framkvæmdarstjóri UNICEF á Íslandi, einnig undir viljayfirlýsingu um frekara samstarf um innleiðingu hugmyndafræði Réttindaskóla UNICEF. Skóla- og frístundavið Reykjavíkurborgar hefur lýst yfir ríkum áhuga á að innleiða hugmyndafræði Réttindaskóla UNICEF inn í skóla- og frístundastarf í borginni.

„Við fögnum þeim ríka áhuga sem borgin hefur sýnt á þessu verkefni og hlökkum mikið til að vinna með þeim að því að sem flest börn í Reykjavík fái tækæri til að læra um Barnasáttmálann og upplifa skólaumhverfi þar sem réttindi barna eru markvisst innleidd samhliða hefbundnu skólanámi,“ segir Bergsteinn Jónsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn