Börn eru í dag meira en þriðjungur fólks sem er á flótta innan Evrópu. Það er mikið áhyggjefni að börn flóttamanna og innflytjenda, sérstaklega þau sem eru án fylgdar foreldra eða týnd, njóti ekki þeirrar verndar sem þau þurfa og eiga því á hættu misnotkun og misneytingu. Það er áætlað að bara í Þýskalandi og Svíþjóð séu um 90 þúsund fylgdarlaus börn.
Miklu meira þarf að gera til að skrásetja fylgdarlaus börn svo hægt sé að vita hvar þau eru staðsett, hvaða aðstoð þau þurfa og hvernig best sé að vernda þau. Fylgdarlaus og týnd börn þurfa stöðugt að vera í forgangi og njóta aðstoðar sérþjálfaðs hjálparstarfsfólks til að finna út hvað sé börnunum fyrir bestu.
UNICEF varar við því að eftir því sem landamæri eru lokaðari, því frjórri verður jarðvegurinn fyrir smyglara og þá sem standa fyrir mansali að misnota sér varnarleysi barna á flótta. Það verður að tryggja öruggt umhverfi þar sem fylgdarlausum börnum er komið fyrir í tímabundið fóstur eða áþekkum úrræðum á meðan unnið er úr beiðnum þeirra um hæli.
Við köllum eftir því að Evrópa setji þegar í stað í gagnið áætlun fyrir fylgdarlaus og týnd börn, áætlun sem þarf að ná til fjölskyldusameiningar, móttöku og flutninga kvótaflóttamanna og hvað annað sem þarf til að vernda börn og tryggja að þau verði ekki fórnarlömb smyglara og mansals.

