22. júní 2020 Áætlað er að 70 prósent jemensku þjóðarinnar skorti aðgengi að sápu til handþvottar og almenns hreinlætis og 11,2 milljónir Jemena hafi ekki aðgang að vatni.
Vatnsskorturinn í Jemen er einn sá alvarlegasti í veröldinni og eftir fimm ár af blóðugum átökum í landinu eru vatnsveitukerfi löskuð og heilbrigðiskerfi þjóðarinnar á heljarþröm þar sem aðeins um helmingur heilbrigðisstofnana eru starfhæfar. Ástandið var nógu slæmt fyrir en nú breiðist COVID-19 hratt út í landinu það sem af er júnímánuði. Tilfellum hefur fjölgað mjög sem og fjölda látinna.
Neyðin í Jemen, sem kölluð hefur verið stærsta mannúðarkrísa veraldar, hefur aftur komist í umræðuna undanfarna daga bæði í netheimum og fjölmiðlum og opnað augu margra fyrir ástandinu. UNICEF er á vettvangi sem endranær við erfiðar aðstæður og fjárskort til verksins. Stofnunin kallar því eftir aðstoð frá almenningi til að geta brugðist við vandanum.
UNICEF á Íslandi stendur fyrir neyðarsöfnun fyrir börn í Jemen sem búa við vatnsskort, hungur og eru berskjölduð fyrir afleiðingum COVID-19 faraldursins. Sendu sms-ið JEMEN í númerið 1900 til að styrkja UNICEF um 1.900 krónur.
Þú getur líka styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi með frjálsu framlagi hér.


