21. nóvember 2013

Jólavörur UNICEF 2013

Jólakort og jólavörur UNICEF eru nú til sölu í Bókabúð Máls og Menningar og verslunum Iðu.

Að senda UNICEF-kort til vina og vandamanna eða skreyta jólatréð með glerkúlu frá UNICEF er ómissandi hluti af jólaundirbúningi margra styrktaraðila okkar.

Jólakort UNICEF hafa verið seld á Íslandi í yfir 60 ár en upprunlega voru það konur í Félagi háskólakvenna sem kynntu landsmönnum fyrir þessum fallega varningi og gerðu fólki þar með kleift að styrkja öflugt starf UNICEF.

Gjafavara og leikföng

Gjafavara UNICEF er nú seld í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18 í Reykjavík en einnig í verslunum Iðu (Lækjargötu 2a og Vesturgötu 2a). Um er að ræða bæði leikföng og jólalega gjafavöru eins og til dæmis jólakúluna sívinsælu.

Þeim sem ekki eiga þess kost að nálgast UNICEF-vörurnar í þessum verslunum bendum við á hafa samband við verslanirnar beint þar sem þær bjóða upp á að senda pantanir til kaupenda.Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi, sími 580 5000Iða, Lækjargötu, sími 511 5001Iða, Vesturgötu, sími 511 5004

Gjafavara UNICEF er framleidd af samfélagslega ábyrgum fyrirtækjum í Afríku og Asíu. Kaupendur geta verið vissir um að ekkert í framleiðsluferli vörunnar skyggi á orðspor samtakanna. Með því að kaupa UNICEF-vöru er ekki einungis verið að styrkja verkefni í þágu barna heldur er einnig verið að styðja við bakið á bágstöddum konum sem oftar en ekki hafa atvinnu af framleiðslunni.

Kort og vörur frá UNICEF eru nú komin í verslanir Iðu og Bókabúð Máls og menningar. Aðdráttarafl kortanna og gjafavörunnar felst ekki einungis í því góða starfi sem styrkt er með kaupunum heldur er um að ræða vandaða og fallega vöru.

 

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn