19. apríl 2010

Kaffi til styrktar UNICEF

Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim.

Fjölmörg

Verkefni sem þetta skiptir starf UNICEF miklu máli þar sem samtökin treysta eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og ríkisstjórna. Verkefnið er UNICEF auk þess að kostnaðarlausu.

Þetta er í fjórða sinn sem UNICEF og Te & Kaffi standa fyrir kaffisölu til fyrirtækja en alls hafa safnast tæpar fimm milljónir króna til verkefna UNICEF í þágu bágstaddra barna. Það er frábær árangur sem við erum þakklát fyrir og vonum við að fyrirtæki landsins taki jafn vel í framtakið núna.

Framkvæmdaaðili símasölunnar er Miðlun ehf. Áhugasamir vinsamlegast hringi í síma 580 8080

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn