07. júní 2018

Kárnesskóli safnar 350.000 krónum til styrktar börnum í Jemen

Nemendur, kennarar, foreldrar og aðrir í Kársnesskóla komu saman þann 5.júní á sérstakri Góðgerðarhátíð þar sem staðið var fyrir hinum ýmsu uppákomum til að safna fyrir góðu málefni. Nemendur fengu að velja málefnið sem safnað var fyrir og fyrir valinu varð neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Jemen.

Nemendur, kennarar, foreldrar og aðrir í Kársnesskóla komu saman þann 5.júní á sérstakri Góðgerðarhátíð þar sem staðið var fyrir hinum ýmsu uppákomum til að safna fyrir góðu málefni. Nemendur fengu að velja málefnið sem safnað var fyrir og fyrir valinu varð neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Jemen.

Jemen hefur verið lýst sem einu versta landi í heimi til að vera barn. Neyðin þar er gífurleg og eftir margra ára átök þarfnast næstum hvert einasta barn í Jemen neyðaraðstoðar.

Nemendur stóðu fyrir hinum ýmsu uppákomum á Góðgerðarhátíðinni en til dæmis má nefna að þeir höfðu búið til alls kyns muni í hinum og þessum greinum yfir skólaárið sem þeir seldu, útbjuggu þrautabraut og lítið bíó þar sem hægt var að kaupa sér snakk fyrir sýningu. Er þetta einungis brot af þeim frábæru hugmyndum sem nemendur stóðu fyrir.

Samtals söfnuðust alls 350.000 krónur á Góðgerðarhátíðinni og rennur upphæðin óskipt í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir stríðshrjáð börn í Jemen.

UNICEF hefur veitt milljónum barna í Jemen neyðarhjálp síðustu ár við gífurlega erfiðar aðstæður. Framlögin úr neyðarsöfnuninni fara í að veita lífsnauðsynlega neyðaraðstoð í Jemen, meðal annars að meðhöndla börn gegn vannæringu, tryggja vatns- og hreinlætisaðstöðu til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma, bólusetja börn gegn mænusótt, dreifa skólagögnum og setja upp barnvæn svæði þar sem kennsla getur farið fram og hægt er að veita börnum sálræna aðstoð til að vinna úr áföllum sínum.

Guðný Jónsdóttir, myndmenntakennari við skólann og einn umsjónarmanna Góðgerðadagsins, afhenti fulltrúa UNICEF á Íslandi, Eyrúnu Ingu Jóhannsdóttur, peningagjöfina á skólaslitum Kárnesskóla í dag, þann 7.júní.

UNICEF á Íslandi færir öllum úr Kársnesskóla innilegar þakkir fyrir þetta frábæra og ómetanlega framtak í þágu barna í Jemen.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn